Fjögur hundruð bjargað en óttast að hundruð hafi drukknað

Um fjögur hundruð flótta­mönnum var bjargað þegar bát hvolfdi undan ströndum Líbíu í gær. Talið er að um sex hundruð manns hafi verið í bátnum og óttast er að þeim sem ekki var bjargað í aðgerðum björgunar­manna í gær hafi drukknað. Ítalska landhelgis­gæslan hefur fundið um 25 lík í vatninu en ekki er vitað hversu margra er saknað, að því er fram kemur í frétt BBC.

Fólkið var á leið yfir Miðjarðar­hafið til Evrópu, líkt og tugþúsundir annarra flótta­manna hafa reynt á þessu ári. Talið er að yfir tvö þúsund manns hafi drukknað á leið sinni yfir Miðjarðar­hafið á þessu ári.

Sjö skip og þyrlur tóku þátt í björgunar­aðgerðum í gær. Fram kemur í umfjöllun BBC að skip írska sjóhersins var fyrst á vettvang eftir að neyðar­kall barst.

Ekki er vitað nákvæmlega hversu margir voru á bátnum í gær. Haft er eftir starfs­manni Sameinuðu þjóðanna að líklega hafi um hundrað manns verið í klefum bátsins þegar hann hvolfdi.

Björgunar­bátur hjálpar­samtakanna MSF, sem starfa við Miðjarðar­hafið, var með þeim fyrstu á vettvang og sagði einn björgunar­manna MSF að aðkoman hafi verið hræðileg.


"People were clinging to life rafts, fighting for their lives" #MSF's Juan Matias from the #Dignity1 pic.twitter.com/VYItrsEDDa


— MSF Sea (@MSF_Sea) August 5, 2015

Yesterday is heavy on our minds but the boats will not stop..The #Phoenix, #Dignity1 and #Argos are all searching for boats in distress. — MSF Sea (@MSF_Sea) August 6, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár