Hundruð flóttamanna saknað eftir að bát hvolfdi í Miðjarðarhafinu

Björgunar­menn leita að hundruðum manna eftir að yfir­fullan bát hvolfdi á leið yfir Miðjarðar­hafið. Talið er að allt að sjö hundruð flótta­menn hafi verið í bátnum, samkvæmt nýrri frétt BBC. Bátnum hvolfdi við strendur Líbíu, samkvæmt frétt The Guardian.

Írski sjóherinn er meðal þeirra björgunar­aðila sem taka þátt í aðgerðum og hefur BBC eftir fulltrúa sjóhersins að menn óttist verulegt manntjón. Fjórir bátar og þrjár þyrlur eru sagðar vera á vettvangi slyssins. Talsmaður Alþjóðlegra aðstoðar­samtaka flótta­manna segir að um hundrað manns hafi þegar verið bjargað úr sjónum.


Yfir tvö þúsund flótta­menn hafi dáið á þessu ári einu á leið sinni yfir Miðjarðar­hafið á leið til Evrópu. Fjöldi flótta­manna er í sögulegu hámarki en talið er að um 150 þúsund manns hafi flúið heimalönd sín í Miðausturlöndum og Afríku, vegna stríðs­ástands og fátæktar, á þessu ári, og sótt til Evrópu í leit að betra lífi. Aukningin nemur 150 prósentum frá árinu 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár