Donald Trump lygari ársins

Donald Trump er lygari ársins að mati bandarísku staðreynda­vaktarinnar Politifact, sem kannar stað­hæfingar stjórn­málamanna í Banda­ríkjunum, og hefur meðal annars hlotið Pulitzer verðlaun fyrir störf sín.

Politifact velur venjulega eina ákveðna lygi, en í þetta skipti gat ritstjórnin ekki valið úr þeim fjölmörgu lygum sem Trump lét út úr sér á árinu, að sögn Arons Sharockman, framkvæmda­stjóra Politifact. "Hann hefur fært fram margar stórar og djarfar yfir­lýsingar. Því miður eru flestar þeirra ónákvæmar." Ummæli Trump vermdu líka þrjú efstu sætin í kosningu lesenda.

Hann sagði meðal annars að þúsundir manna hafi fagnað í New Jersey þegar tvíbura­turnarnir í New York féllu. Þetta var rannsakað ítarlega af Politifact og ekkert rennir stoðum undir þessa stað­hæfingu Trump. Hún var því metin haugalygi (Pants on Fire) af Politifact og var lygi ársins að mati lesenda.

Hann sagði einnig að Mexíkó væri að senda vont fólk, nauðgara og eitur­lyfjasala, yfir landa­mærin til Banda­ríkjanna, sem er líka haugalygi.

Þá sagði Trump á Twitter að menn af afrískum uppruna bæru ábyrgð á yfir 80 prósentum morða á hvítu fólki í Banda­ríkjunum. Það er haugalygi.

Efni sem var innfellt hér (launch.newsinc.com) er ekki lengur aðgengilegt.

Í fyrra var lygi ársins valin ýkjur um Ebólu í Banda­ríkjunum. Aðeins tveir létu lífið í tengslum við Ebólu-veiruna í fyrra en þrátt fyrir það var mikill hræðslu­áróður í gangi, bæði hjá stjórn­málamönnum og álits­gjöfum í fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár