Fimmti hver Rússi hefur vart efni á mat og helstu nauðsynjum

Framtíðar­væntingar neytenda í Rússlandi mælast nú lægri en þær mældust í miðri alþjóð­legu fjármála­kreppunni og tæplega einn fimmti hluti Rússa, 18 prósent, þénar einungis nógu mikið til að kaupa mat og helstu nauð­synjar. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Þar segir að niður­stöður mælinga rannsóknar­fyrir­tækisins Nielsen, sem mælir væntingar fólks til fram­tíðarinnar í 60 löndum, sýni minnkandi væntingar. Væntinga­vísitala Nielsen, sem svipar til þeirrar vísitölu sem Gallup heldur utan um á Íslandi, féll um sjö stig á fyrsta ársfjórðungi þess árs og er nú 72 stig. Meðaltal allra landanna sem væntinga­vísitalan nær til var 96 stig í lok síðasta árs og því ljóst að mikil svartsýni ríkir á meðal almennings í Rússlandi. Ástæðan er sú efnahagskreppa sem nú gengur yfir Rússland í kjölfar falls á verði á olíu og gasi og há verðbólga sem hefur leitt af sér síhækkandi vöruverð. Það gerir það að verkum að sífellt fleiri Rússar hafa efni á að kaupa margar vörur.

Til að setja þessa stöðu í samhengi þá var væntinga­vísitala Nielsen í Rússlandi 75 á fyrsta ársfjórðungi ársins 2009, þegar alþjóð­lega fjármála­kreppan var á hátindi sínum.

Staðan er meira að segja verri en í Kreppunni miklu. Þá sögðust 4,7 prósent Rússa að þeir ættu einungis pening til að kaupa helstu nauð­synjar. Í nýjustu könnun Nielsen var það hlutfall, líkt og áður segir, 18 prósent eða rúmlega þrisvar sinnum hærra en í Kreppunni miklu.

Þetta eru ekki einu hagtölurnar sem koma illa út fyrir Rússland um þessar mundir. Samkvæmt Rosstat, rússnesku hagstofunni, lækkaði kaup­máttur launa þar í landi fimmta mánuðinn í röð í mars. Kaup­máttur er að dragast saman um 1,8 prósent á ári miðað við þá niður­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár