Íslenska ríkið kaupir Geysi

Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður landeigenda, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu kaupsamninginn.
Hjör­leifur B. Kvaran, lög­maður land­eig­enda, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­rit­uðu kaup­samn­ing­inn.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra og Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður Land­eigenda­félags Geysis ehf., undir­rituðu í dag samning um kaup ríkisins á öllum eignar­hluta land­eigenda­félagsins á Geysis­svæðinu. Kaup­verðið hefur ekki verið ákveðið en samkvæmt samningnum verður það lagt í mat þriggja dómkvaddra matsmanna. Frá þessu er greint á vef fjármála- og efnahags­ráðuneytisins. Málið var kynnt, og samþykkt, á ríkis­stjórnar­fundi fyrr í dag.

Svæðið innan girðingar á Geysi er um það bil. 19,9 hektarar að stærð. Innan þess svæðis á ríkið sem séreign um 2,3 hektara lands fyrir miðju svæðisins en þar eru hverirnir Geysir, Strokkur, Blesi og Óþverris­hola. Það sem eftir stendurm um 17,6 ha., er í sameign ríkisins og Land­eigenda­félagsins. Ríkið hefur um margra ára skeið átt í viðræðum við sameigendur sína innan girðingar á Geysis­svæðinu um hugsanleg kaup ríkisins á eignar­hluta þeirra og deilur hafa staðið yfir um rétt land­eigendanna til að rukka inn á svæðið.

Við undir­ritun samningsins tók ríkið formlega við umráðum alls lands sameigenda innan girðingar við Geysi. Þar með er ríkið orðið eigandi alls þess svæðis, en ríkið á þegar stóran hlut aðliggjandi lands­svæða utan girðingar. Í frétt ráðuneytisins segir að samningurinn marki „tímamót því hann auðveldar heild­stæða uppbyggingu á svæðinu í samræmi við niður­stöðu í hugmynda­samkeppni um Geysis­svæðið sem haldin var fyrir nokkrum misserum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár