Elon Musk telur að hægt verði að senda fólk til Mars á næstu 12 árum

Milljarðamæringurinn Elon Musk telur raunhæft að hægt verði að senda mönnuð geimför til reikistjörnunnar Mars eftir ellefu til tólf ár. Þetta kom fram í spjalli hans við stjörnu­fræðinginn og vísinda­manninn Neil deGrasse Tyson í útvarps­þættinum StarTalk á dögunum. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Það sem er áhugavert við ummæli Musk er að bandaríska geimferða­stofnunin, NASA, hefur ekki gefið út nákvæma dagsetningu um hvenær reynt verður að ráðast í mannaða geimferð til reikistjörnunnar. Stofnunin hefur þó gefið út að það verði einhvern tímann eftir árið 2030, en NASA hefur gengist undir niður­skurðarhníf bandarískra stjórn­valda trekk í trekk undan­farin ár.

Musk hefur sjálfur uppi fyrir­ætlanir um mannaðar geim­ferðir til Mars, en á enn eftir að útlista ráðagerð sína varðandi SpaceX, sem er fyrirtæki hans sem hyggur á land­vinninga í sólkerfinu, hvað nýlendu­ferð til Mars varðar.

Auðkýfingurinn og frumkvöðullinn við eina af geim­flaugum SpaceX. Mynd: EPA

Auðkýfingurinn og frumkvöðullinn við eina af geimflaugum SpaceX. Mynd: EPA
Auð­kýf­ing­ur­inn og frum­kvöð­ull­inn við eina af geim­flaugum SpaceX. Mynd: EPA

SpaceX, sem er tólf ára gamalt fyrirtæki, færist nær því að fullkomna tækni þar sem hægt verður að nota eldflaug oftar en einu sinni, sem mun draga verulega úr kostnaði við geim­ferðir. Í dag kostar geimskot um 60 milljónir Bandaríkja­dala. Endur­nýtanlegar eldflaugar gætu lækkað þann kostnað niður í 200 til 300 þúsund dali.

NASA virðist hafa trú á háleitum markmiðum Musk og gerði samning við SpaceX um þróun og hönnun geimfars sem getur flutt vistir og með tíma geimfara til alþjóð­legu geim­stöðvarinnar. SpaceX hefur nú þegar tekist að senda vistir til geim­stöðvarinnar, og stefnir á að senda geimfara með geim­flauginni innan tíðar.

Þá eru uppi áform um frekari samvinnu NASA og SpaceX um að senda ómannað könnunarfar til Mars á næstu sjö árum, sem er ætlað að safna sýnum á rauðu plánetunni og flytja aftur til jarðar.

SpaceX ráðgerir hins vegar sinn eigin mannaða leiðangur til Mars, og hefur nú þegar opinberað fyrir­ætlanir sínar um nýja og stóra geimflaug sem er hönnuð til að bera mikinn farm, eins og nauðsynlegt verður þegar ráðist verður í jafn langar mannaðar geim­ferðir og til Mars. Reiknað er með að fyrir­tækið geri frekar grein fyrir geim­ferjunni síðar á þessu ári.

Hægt er að hlusta á Elon Musk ræða fyrir­ætlanir sínar við Neil deGrasse Tyson, í áður­nefndum útvarps­þætti, hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár