Sigríður Rut og María metnar hæfastar í embætti héraðsdómara

Sigríður Rut Júlíusdóttir og María Thejll hafa verið metnar hæfastar til að gegna embætti héraðs­dómara í Reykjavík og Reykjanesi.

Sigríður Rut Júlíusdóttir hefur verið einn eigenda lögmannsstofunnar Réttar um árabil.
Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir hefur verið einn eig­enda lög­manns­stof­unnar Réttar um ára­bil. Mynd: Skjáskot/Hringbraut

Lögmennirnir Sigríður Rut Júlíusdóttir og María Thejll hafa verið metnar hæfastar til að gegna tveimur embættum dómara sem munu hafa fyrstu starf­stöðvar við Héraðsdóm Reykja­víkur annars vegar og Héraðsdóm Reykjaness hins vegar.

Embættin voru auglýst laus til umsóknar 9. júlí og alls bárust átta umsóknir um fyrr­nefnda embættið en sjö umsóknir um hið síðarnefnda, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins.

Enn umsækjenda, Björn Þorvaldsson, dró umsókn sína til baka, en hann var skipaður í annað auglýst embætti dómara við Héraðsdóm Reykja­víkur síðla sumars.

Í umsögn dómnefndar segir að Sigríður Rut hafi um 20 ára skeið starfað sem lögmaður og lengst af verið einn af eigendum lögmanns­stofu, sem hún stofnaði ásamt öðrum 2002, en það er lögmanns­stofan Réttur. Á þeim tíma hafi hún flutt fjölda viða­mikilla mála fyrir dómi, þar á meðal fyrir Hæstarétti og Lands­rétti.

Um Maríu segir að hún hafi starfað í nær 13 ár sem lögmaður, þar af frá árinu 2017 hjá embætti ríkis­lögmanns og flutt fjölda mála fyrir dómi, þar á meðal vandasöm mál fyrir Lands­rétti og Hæstarétti í núverandi starfi sínu. María var áður forstöðu­maður Laga­stofnunar Háskóla Íslands frá 2003-2016 og forstöðu­maður Mann­réttinda­stofnunar sama skóla frá 2005-2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár