Stefán Einar svarar Skúla og segir bókina standa óhaggaða og óhrakta

Stefán Einar Stef­ánsson, höfundur nýrrar bókar um WOW air, svarar ummælum Skúla Mogensen í hans garð og segir full­yrðingar sínar um fall WOW air standa ó­haggaðar.

Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta hjá Morgunblaðinu.
Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta hjá Morg­un­blað­inu. Mynd: Aðsend mynd

Stefán Einar Stef­ánsson, frétta­stjóri viðskipta á Morgun­blaðinu og höfundur nýrrar bókar um uppgang og fall WOW air, segir svör Skúla Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, um full­yrðingar sem birtust í bókinni einungis sýna fram á mikilvægi bókarinnar. Skúli fór hörðum orðum um bók Stefáns Einars í stöðu­færslu á Facebook í gær og taldi fram sex dæmi um það sem hann segir vera dylgjur og ósannindi í málflutningi Stefáns Einars. Í stöðu­færslu á Facebook í dag svarar Stefán Einar þeim sex atriðum.

Segir fréttina hafa verið rétta og sannleikanum samkvæmt

Skúli skrifaði í gær að Stefán Einar hafi áður borið fram alvarlegar ásakanir og rang­færslur í garð WOW air sem áttu ekki við rök að styðjast. Hann sagði að alvarlegast hafi verið þegar hann fullyrti að WOW air skuldaði Isavia tvo millj­arða í stórri for­síðu­grein sem Morg­un­blaðið birti 15. sept­em­ber 2018 rétt fyrir skulda­bréfa­út­boð WOW air í september. „Núna liggja fyrir gögn sem sýna svo ekki verður um villst að skuld okkar við Isavia var nær einum millj­arði á þessum tíma en ekki tveim millj­örðum eins og Stefán Einar full­yrti. Þessi frétt og sú umræða sem skap­að­ist í fram­hald­inu hafði mjög nei­kvæð áhrif á skulda­bréfa­út­boðið og starf­semi WOW air,“ segir Skúli í stöðu­uppfærslunni.

Stefán Einar vísar þessum full­yrðingum Skúli á bug og segir að öll gögn sem komið hafi fram annað hvort í hans hendur eða opinber­lega hafi staðfest að fréttin hafi verið rétt og sann­leikanum samkvæmt.

„Í byrjun október 2018 undir­ritaði Skúli leynilegt og fordæma­laust samkomulag við Isavia þar sem hann fór á bak við sína nánustu samstarfs­aðila. Þar staðfesti hann að WOW air væri í vanskilum við Isavia upp á ríflega milljarð króna vegna starfsemi fyrir­tækisins á Kefla­víkur­flugvelli í júní og júlí 2018. Þegar fréttin var birt í Morgun­blaðinu var einnig ágúst­mánuður og helmingur september­mánaðar liðinn og WOW air búið að stofna til útgjalda upp á tæpan milljarð til viðbótar við vanskila­skuldina. Þess vegna var rétt sem Morgun­blaðið hélt fram að WOW air skuldaði um tvo milljarða, þar af um helminginn gjald­fallinn á þeim tíma. Skúli getur ekki haldið því fram að einu skuldir WOW air hafi verið þær sem komnar voru fram yfir greiðslu­fresti. Allir vita að maður sem skuldar 20 milljónir í fasteignalán skuldar þá fjármuni þótt hann sé alltaf í skilum við lánveitanda sinn. Samkvæmt skilgreiningu Skúla virðist þó sem sá sami maður sé skuldlaus svo lengi sem hann geri upp sín mál fyrir eindaga,“ segir í stöðu­uppfærslu Stefáns Einars.

Vissu frá upphafi hvað pöntunin gæti leitt yfir félagið

Auk þessara taldi Skúli til sex atriði í stöðu­færslu sinni sem hann segir Stefán Einar hafa farið rangt með í bók sinni. Í fyrsta lagi vísar Skúli því á bug að Ben Baldanza hefði komið inn í stjórn WOW air fyrir tilstuðlan eða þrýsting frá Airbus eða öðrum hagsmuna­aðilum. Stefán Einar segir þá full­yrðingu Skúla ganga í berhögg við þær upplýsingar sem hann býr yfir frá aðilum sem hann leitaði til við skrif bókarinnar. Hann hafi enga ástæðu til þess að efast um trúverðug­leika þeirra upplýsinga.

Enn fremur gefur Stefn Einar lítið fyrir full­yrðingar Skúla um að það sé rangt að Airbus og aðrir leigu­salar fyrir­tækisins hafi haft áhyggjur af rekstri WOW árið 2016 en Stefán segir sömu heimildar­menn og hann vísaði áður til hafa staðfest að slíkar full­yrðingar voru til staðar. „Margir þeirra sann­færðust strax árið 2016 að það stefndi í alvarlegt óefni hjá WOW air, einkum eftir að upplýst var um það í nóvember 2015 að félagið hygðist taka í þjónustu sína þrjár A330-300 breið­þotur. Skúli hefur reyndar viðurkennt að „kaupin“ á þessum vélum hafi reynst banabiti félagsins. Vandinn er aðeins sá að hann sá það ekki fyrr en um seinan en reynslu­boltar í flug­heiminum vissu frá upphafi hvað pöntunin gæti leitt yfir félagið,“ segir Stefán Einar. 

Þriðja atriðið sem Skúli tekur fyrir er full­yrðing Stefán Einars um að hann ásamt stjórn félagsins hafi viljandi hundsað aðvörunarorð annarra í flug­heiminum. Hann sagði að það liggi fyrir að mistök hafi verið gerð en þau hafi talið þær vera réttar á sínum tíma. Stefán bendir hins vegar á að gríðarleg starfsmanna­velta hafi verið meðal stjórn­enda fyrir­tækisins sem hann segir að hafi oft verið til komin vegna ágrein­ings um ákvarðanir sem teknar voru. Auk þess bendir hann á opinber ummæli Baldanza um að ekki hafi verið hlustað á ráðleggingar þeirra.

Segir Skúla ekki hafa náð að hrekja það sem gögnin benda til

Skúli sagði jafnframt að full­yrðing Stefáns Einars um að helm­ing­ur­inn af sex millj­arða króna skulda­bréfa­út­boði WOW air hafi verið skulda­leið­rétt­ing eða skuld­breyt­ing sé alfarið röng. „Þetta er rangt og stenst enga skoðun enda hefur ekk­ert komið fram sem styður þessa full­yrð­ingu Stefán Ein­ar­s.“

Stefán segir aftur á móti að gögn hans bendi sterklega til þess og að Skúla hafi ekki tekist að hrekja þau. Hann segir að ljóst sé að þátttaka Airbus, ALC, Avolon, Arion banka og fleiri aðila hafi verið bundin skilyrðum af því tagi. Auk þess hafi Björgólfur Thor Björgólfsson, sem lagði félaginu til 3 milljónir evra, tjáð sig um efni bókarinnar með afgerandi hætti en ekki gert athugasemd við þennan þátt málsins.

Enn fremur sagði Skúli að viðræður sínar við Icelandair hafa verið á óformlegum nótum. Hann hafi fyrst hitt Ómar Benediktsson fyrir tilviljun á flug­ráðstefnu þar sem þeir spjölluðu saman. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um um að hittast í kaffi ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair. 

Stefán Einar segir hins vegar að viðræðurnar hafa verið aðeins meira en kaffi­spjall þar sem tillögur að eignar­hlut Skúla í sameinuðu félagi Icelandair og WOW voru lagðar fram. Þá hafi fleiri komið að viðræðunum en þau sem Skúli nefnir og aðeins greint frá því í bókinni að Icelandair hafi talið nauðsynlegt að tilkynna markaðnum um viðræðurnar. Sú staðreynd hafi ekki verið hrakin. 

„Skúli var á öðru máli. Það var ekki í eina skiptið sem Skúli taldi óþarft að upplýsa viðskipta­menn sína um mikil­vægar ákvarðanir eða vendingar í rekstri félagsins,“ skrifar Stefán.

Segir bókina standa óhaggaða og óhrakta

Þá segir Stefán Einar ekkert í orðum Skúla hrekja það sem fram kemur í bókinni um aðkomu Samgöngu­stofu og annarra opinberra aðila að málefnum WOW air. Í bókinni sé gerð skilmerki­lega grein fyrir tilraunum forsvars­manna félagsins til að bjarga því og aldrei haldið því fram að þeir einstaklingar hafi ekki haft trú á því sem þeir voru að gera. „Það breytir ekki þeirri staðreynd að Samgöngu­stofa vinnur eftir strangri reglu­setningu sem stofnuninni er ekki heimilt að sveigja eða beygja, jafnvel þótt Skúli Mogensen eigi í hlut. Á það hef ég bent, líkt og fleiri og nú hefur Ríkis­endurskoðun það verkefni með höndum að fara ofan í saumana á því máli,“ skrifar Stefán Einar.

Að lokum skrifar Stefán Einar að nú séu fjölmargir aðilar að rannsaka málefni WOW air og á komandi mánuðum muni mála­rekstur innan dómstóla og utan leiða sann­leikann fram með enn skýrari hætti en honum var unnt að gera á þeim fimm vikum sem ritunar­tími bókarinnar var. Hann segir að hvað sem líður „stóryrtum“ yfir­lýsingum Skúla Mogensen í hans garði standi bókin hans um WOW air óhögguð um og óhrakin.

„Ég er algjör­lega sann­færður um að sú mynd sem þar verður dregin upp verði í samræmi við það sem ég hef sagt um þetta mál fram til þessa. Hins vegar verður myndin skýrari og ég veit fyrir víst að þar munu einnig birtast frekari upplýsingar sem eiga ekki síður erindi við íslenskt samfélag en það sem ég hef gert að umfjöllunar­efni í skrifum mínum,“ segir Stefán Einar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár