Sýn langt komið í sölu á farsímainnviðum

Sýn fetar í fótspor erlendra fjarskipta­fyrirtækja og er langt komið með að selja og endurleigja óvirka farsíma­innviði félagsins. Sölu­hagnaður fyrir­tækisins gæti numið yfir sex milljörðum króna.

Höfuðsöðvar Sýnar á Suðurlandsbraut
Höf­uð­söðvar Sýnar á Suð­ur­lands­braut Mynd: Bára Huld Beck

Sýn hefur náð samkomu­lagi við erlenda fjárfesta um helstu skilmála í sölu og 20 ára endur­leigu á óvirkum farsíma­innviðum félagsins. Sölu­hagnaður Sýnar gæti numið yfir sex milljörðum króna, gangi viðskiptin eftir.

Þetta kemur fram í fjárfesta­tilkynningu sem Sýn sendi frá sér í morgun. Samkvæmt tilkynningunni felst þó engin skuld­binding eða trygging um að af viðskiptunum verði í umræddu samkomu­lagi og séu þau háð áreiðanleika­könnun og mögulegri aðkomu eftirlits­stofnanna.

Fjarskipta­félagið hyggst aðeins selja óvirkan farsíma­búnað sinn, allur virkur farsíma­búnaður verður áfram í eigu Sýnar. Óvirki farsíma­búnaðurinn yrði áfram aðgengi­legur Sýn, en félagið býst við að gera langtíma­leigu­samning við nýja eigendur þess.

Hefur verið til skoðunar

Kjarninn hefur áður fjallað um fyrir­hugaðan aðskilnað innviða­starfsemi og þjónustu­starfsemi íslenskra fjarskipta­fyrirtækja. Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar sagði í síðasta árshelmings­uppgjöri félagsins að það væri til athugunar að bjóða hluta farsíma­kerfisins til sölu, sem hann teldi skila miklu fjármagni til hluthafa.

„Alþjóð­legir aðilar hafa mik­inn áhuga á fjár­fest­ingum í innviðum sím­fyr­ir­tækja og marg­fald­arar í við­skiptum eru mun hærri en ger­ist á almennum hluta­bréfa­mark­að­i,“ er haft eftir Heiðari.

Síminn hefur einnig fengið óformlegar fyrir­spurnir frá fjár­festum um möguleg kaup á innviða­hluta fjarskipta­fyrir­tækisins, Mílu. Fyrir­tækið tilkynnti einnig fyrir­hugaðan flutning á farsíma­dreifikerfi og IP-neti til Mílu í síðasta uppgjöri. Í tilkynningu Símans til fjárfesta meðfram uppgjörinu sagði Orri Hauksson forstjóri Símans einnig að verið væri að skoða hvort aðskilja eigi fjár­mögnun Mílu og Símans.

Fordæmi frá öðrum Evrópulöndum

Fjarskipta­fyrirtæki víða um Evrópu hafa farið í sams konar endur­skipulagningar á síðustu árum. Árið 2014 skapaði tékkneski hluti fjarskipta­fyrir­tækisins O2 sérstakt félag fyrir innviða­starfsemina sína, en samkvæmt umfjöllun ráðgjafa­fyrir­tækisins McKinsey um málið græddu hluthafar mjög á þessum aðskilnaði.

Í fyrra lauk svo aðskilnaði innviða- og þjónustu­hluta danska fjarskipta­fyrir­tækisins TDC, að frumkvæði nýrra fjárfesta sem komu inn í félagið. Einnig tilkynnti ítalska fjarskipta­fyrirtækið Telecom Italia í byrjun september­mánaðar sölu á þriðjungi landlína fyrir­tækisins til hins opinbera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár