135 þúsund Danir fá ekki að kjósa í komandi þingkosningum

Þing­kosningar fara fram í Danmörku í næstu viku, fimmtudaginn 18. júní. Samkvæmt könnunum er afar mjótt á munum milli rauðu blokkarinnar svonefndu (stjórnarinnar og stuðnings­flokka hennar) og bláu blokkarinnar (stjórnar­andstöðunnar).

Fram­bjóðendur leggja nótt við dag í kosninga­baráttunni enda munar um hvert atkvæði, ekki síst þegar úrslitin virðast jafn tvísýn og nú er raunin. Þess vegna kom það mörgum á óvart þegar eitt dönsku blaðanna sagði frá því nýverið að 135 þúsund Danir fái ekki að kjósa til þings í næstu viku.

100 ára gömul lög


Þegar dönsku stjórn­ar­skránni (Grund­loven) var breytt fyrir réttum eitt hund­rað árum, og konur fengu kosn­inga­rétt, var það jafn­framt tekið fram að til að mega kjósa skuli við­kom­andi vera búsettur í Danmörku, á Græn­landi eða í Færeyjum. Þetta ákvæði er enn í stjórn­ar­skránni og Danmörk hefur að þessu leyti sér­stöðu meðal Norð­ur­landa.

Svíar, Finnar og Norðmenn halda sínum kosninga­rétti út ævina (ef þeir halda ríkis­borgara­réttinum), Íslendingar halda kosninga­réttinum í átta ár en þurfa síðan að óska eftir að fá að kjósa, en það fyrir­komulag er í reynd forms­atriði. Það er þetta hundrað ára gamla laga­ákvæði sem nú hefur vakið hefur umræður hér í Danmörku.

Borgar skatt en fær ekki að kjósa


Danska Sjón­varpið, DR, birti fyrir nokkrum dögum við­tal við danskan mann sem býr í Hels­ingja­borg, handan Eyr­ar­sunds. Hann fer dag­lega til vinnu í Kaup­manna­höfn, er danskur rík­is­borg­ari, og borgar skatt til danska rík­is­ins. Hann hefur lögum sam­kvæmt engan rétt til að taka þátt í þing­kosn­ingum hér í landi.

Þessi maður er hátt­settur innan danska hersins og þykir súrt í broti að mega ekki greiða atkvæði og leggja sitt af mörkum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann fær ekki að kjósa en sagði í viðtalinu að það bætti ekki úr skák.

Samkvæmt upplýsingum sem DR hefur aflað sér eru samtals 135 þúsund Danir í sömu stöðu og áður­nefndur foringi í hernum. Stærstur hluti þess hóps vinnur ekki í Danmörku og borgar ekki skatt til danska ríkisins en stjórnar­skráin gerir engan greinarmun þar á.

Evrópusambandið hefur margoft gert athugasemdir


Á und­an­förnum árum hefur fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins margoft gert athuga­semdir við þetta danska laga­á­kvæði. Þetta er algjör­lega á skjön við hug­myndir og lög um frjálst flæði vinnu­afls og flutn­ing fólks á milli landa innan sam­bands­ins. Málið hefur líka margoft verið tekið upp í danska þing­inu og árið 2004 voru sam­þykkt nokkur und­an­tekn­ing­ar­á­kvæði, til dæmis varð­andi starfs­fólk Utan­rík­is­ráðu­neytis, alþjóða­stofn­ana og náms­menn.

Í kosningum 2011 kusu tæplega sex þúsund Danir sem eru búsettir utan Danmerkur og falla undir þetta ákvæði. Margir úr hópi núverandi þingmanna hafa lýst vilja til að breyta stjórnar­skránni en það er ekki einfalt mál.

Stjórnarskránni hefur aðeins fjórum sinnum verið breytt


Danska stjórn­ar­skráin er frá árinu 1849. Síðan þá hefur henni verið breytt fjórum sinnum, sein­ast árið 1953. Til að breyta þarf þingið að sam­þykkja breyt­ing­una tvisvar, með þing­kosn­ingum í milli­tíð­inni. Ef þingið sam­þykkir breyt­ing­una þarf að bera hana undir þjóð­ar­at­kvæði.

Í slíkum kosningum þurfa 40 prósent þeirra sem atkvæðis­rétt hafa að greiða breytingunni atkvæði sitt. Þetta ákvæði gerir það að verkum að mjög erfitt er að gera breytingar á stjórnar­skránni, "erfiðara en að breyta fjalli" sagði danskur þingmaður þegar þetta var til umræðu í sjón­varpinu fyrir skömmu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár