Nýsköpunarmiðstöð Íslands lögð niður um næstu áramót

Niður­staða greiningar­vinnu atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytisins er sú að hluta verkefna Nýsköpunar­miðstöðvar Íslands megi framkvæma undir öðru rekstrar­formi.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, kynnti á ríkis­stjórnar­fundi í morgun áform sín um að leggja niður Nýsköpunar­miðstöð Íslands (NMÍ) um næstu áramót og finna nýjan farveg þeim verkefnum sem haldið verður áfram. Þetta kemur fram í vef Stjórnar­ráðsins.

Þá segir að með breytingunum vilji ráðherrann stuðla að öflugum opinberum stuðningi þar sem hans sé þörf í núverandi umhverfi. „Eitt leiðar­ljósa nýsköpunar­stefnu fyrir Ísland er að nýta eigi fjármagn til rannsókna og frumkvöðla umfram umsýslu og yfir­byggingu. Það er mikilvægt að endur­skoða hlutverk opinberra stofnana reglulega svo stjórn­völd geti sem best þjónað hlutverki sínu um stuðning við nýsköpun í landinu,“ segir Þórdís Kolbrún.

Í tilkynningunni kemur fram að hún hafi í kjölfar nýsköpunar­stefnu sett af stað vinnu, til að forgangs­raða verkefnum í þágu nýsköpunar­umhverfis á Íslandi.

„Í haust kynntum við til sögunnar nýsköpunar­stefnu fyrir Ísland og aðgerðir í kjölfarið. Þetta er næsta skref. Fram­haldið krefst samtals við fjölda hagsmuna­aðila og við gefum okkur góðan tíma til að gæta þeirra mikilvægu verkefna sem við viljum forgangs­raða og standa vörð um,“ segir Þórdís Kolbrún.

Hluti verkefna Nýsköpunarmiðstöðvar má framkvæma undir öðru rekstrarformi

Samkvæmt ráðuneytinu er niður­staða mikillar greiningar­vinnu sú að hluta verkefna NMÍ megi framkvæma undir öðru rekstrar­formi. Hluti verk­efnanna geti verið framkvæmdir af aðilum á markaði og hluti verk­efnanna sé ekki forgangs­verkefni hins opinbera í nýsköpun vegna þroskaðra umhverfis nú og því hætt.

Nýsköpunar­ráðherra hefur mótað áætlun um fjögur meginsvið stofnunarinnar, greint helstu verkefni og næstu skref eru að finna þeim farveg eftir þörfum í nýju rekstrar­formi.

  1. Starfs­hópi skipuðum fulltrúum ráðuneytisins, háskóla­samfélagsins, atvinnu­lífsins og Bygginga­vettvangsins verður falið að taka sérstak­lega til skoðunar vettvang fyrir bygginga­rannsóknir. Horft er til þess að fjármunum til bygginga­rannsókna verði t.a.m. beint í samkeppnis­sjóð og þannig stuðlað að öflugum rann­sóknum á sviðinu.
  2. Komið verði á samstarfi ráðuneytisins, háskóla­samfélagsins og atvinnu­lífs um rekstur nýsköpunar­garða fyrir frumkvöðla og sprota­fyrirtæki. Þeir yrðu eins konar sjálfstætt framhald af hluta þeirrar starfsemi sem nú fer fram undir merkjum NMÍ, en rekstrar­form yrði með öðrum hætti. Stefnt er að því að starfsemi nýsköpunar­garða verði staðsett í Vatns­mýrinni.
  3. Stefnt verði að því að mælingar, prófanir og efna­greiningar, þ. á m. prófanir vegna mann­virkja og vega­gerðar sem og mengunar­mælingar vegna stóriðju verði framkvæmdar á faggildum prófunar­stofum í samræmi við alþjóðlegar gæða­kröfur.
  4. Stuðningur hins opinbera við nýsköpunar­umhverfið á lands­byggðinni verður efldur, t.a.m. með eflingu stafrænna smiðja (Fablabs). Mikilvægt er að samþætta aðgerðir enn betur við sóknar­áætlanir lands­hluta með samvinnu við landshluta­samtök, atvinnu­þróunar­félög, Byggða­stofnun og atvinnu­lífið.

Ætla að standa við alla samninga og skuldbindingar

Þá kemur jafnframt fram hjá ráðuneytinu að unnið sé að því að fara í gegnum alla samninga og skuld­bindingar stofnunarinnar og tímaramma þeirra. Staðið verði við þá samninga og þær skuld­bindingar sem að stofnuninni snúa. Skoðað verði hvernig verkefnin falla að nýjum áherslum í stuðningi við nýsköpun og í kjölfarið verði tekin ákvörðun um framhald þeirra.

Bein framlög úr ríkis­sjóði til Nýsköpunar­miðstöðvar Íslands eru nú rúmlega 700 milljónir króna árlega, að undan­skildum kostnaði við húsnæði NMÍ í Keldna­holti, sem fært verður til ríkis­eigna. Ráðgert er að tæplega helmingur þess fjármagns verði notaður til að fylgja eftir þeim verkefnum stofnunarinnar sem framhald verður á.

Sigríður Ingvars­dóttir, forstjóri NMÍ, mun leiða vinnuna innan NMÍ og njóta stuðnings stýrihóps ráðuneytisins. Starfs­hópar verða skipaðir á næstu dögum til að styðja við verkefnið með aðkomu hagaðila. Starfs­fólk NMÍ hefur verið upplýst um stöðuna, samkvæmt tilkynningunni.

81 starfsmaður hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Nýsköpunar­miðstöð Íslands var sett á fót árið 2007 með sameiningu Iðntækni­stofnunar og Rannsókna­stofnunar byggingar­iðnaðarins. Starfs­menn NMÍ eru 81 og starfa í 73 stöðu­gildum, þar af fimm á lands­byggðinni. Áform eru um að stofnunin verði lögð niður um áramót og verður þá staðið við allar skuld­bindingar gagnvart starfs­fólki.

„Sú aðstaða og aðstoð sem Nýsköpunar­miðstöð og starfs­fólk hennar hefur veitt í gegnum árin hefur skipt sköpum fyrir fjölmarga frumkvöðla og fyrirtæki og tekið þátt í að skapa það nýsköpunar­umhverfi sem við njótum dag. Sá árangur gerir okkur kleift að taka næstu skref inn í framtíð nýsköpunar­landsins Íslands,“ segir ráðherrann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár