Kostar minnst þrettán milljarða að flytja olíutankana frá Örfirisey

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokks í komandi borgar­stjórnar­kosningum, hefur talað fyrir íbúabyggð í stað olíu­birgða­stöðvarinnar í Örfirisey. Verkefnis­stjórn taldi árið 2007 Örfirisey vera besta kostinn fyrir olíu­birgð­ar­stöð hvað varðar kostnað og áhættu. Kostnaður við að flytja stöðina er minnst 13-16 milljarðar króna að núvirði.

Örfirisey var talin besti kosturinn fyrir olíubirgðarstöð í rannsókn frá 2007 sem borgar­stjóri kallaði eftir. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokks fyrir borgar­stjórnar­kosningar, hefur kallað eftir íbúabyggð með háhýsum í stað olíu­tankanna, en kostnaðurinn við flutning stöðvarinnar væri að minnsta kosti 13-16 milljarðar króna.

„Grandinn er nú þegar með margs konar hverfis­verslun og þjónustu en þar er ekki ein einasta skipulögð íbúð enda er svæðið skipulagt atvinnu- og hafnar­svæði,“ skrifaði Eyþór  í Frétta­blaðinu 19. janúar. „Mögulegt er að byggja 10-15 þúsund manna byggð í áföngum í Örfirisey og bjóða þar fram myndar­lega þróun byggðar sem myndi létta á ójafnvægi í umferð og vera valkostur fyrir fólk sem vill búa á miðsvæði.“

Sumarið 2006 óskaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgar­stjóri og samflokksmaður Eyþórs, eftir greiningu á stað­setningu olíubirgðarstöðvarinnar. Verkefnis­stjórn skilaði af sér niður­stöðum í október 2007 og kom fjöldi aðila að verkinu, en danska ráðgjafar­fyrirtækið COWI framkvæmdi áhættu­greiningu á stöðinni. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár