Carlsberg og Coca Cola vilja nota „plastflöskur“ úr plöntum

Á meðan plast­flöskum skolar upp í fjörur um allan heim og valda skaða á lífríki er hollenskt fyrirtæki að reyna að finna umhverfis­væna lausn fyrir drykkjar­vöru­fram­leiðendur.

Carlsberg ætlar að selja pilsner í pappaflöskum sem að innan eru húðaðar með plastlíku efni úr plöntum.
Carlsberg ætlar að selja pilsner í pappaflöskum sem að innan eru húð­aðar með plast­líku efni úr plöntum. Mynd: Avantium

Hollenskt lífefna­fyrirtæki hefur þróað umbúðir fyrir drykkjar­vörur sem brotna niður í nátt­úrunni á einu ári. Fyrir­tækin Coca Cola og Carlsberg hafa þegar lýst yfir áhuga og vilja koma drykkjum sínum í þessar umhverfis­vænu umbúðir í stað plasts sem framleitt er úr olíu og er í margar aldir að brotna niður.

Hráefnið sem fyrir­tækið Avantium ætlar að nota er úr plöntum sem rækta á með sjálf­bærum hætti. Bjór­fram­leiðandinn Carlsberg hefur þegar ákveðið að prófa að tappa pilsner á flöskur sem hafa pappa í ytra byrði en „plast“ unnið er úr sykrum plantna á innan.

Forstjóri Avantium vonast til þess að verkefnið verði komið það vel á veg í loks árs að hægt verði að fá að því fjárfesta. Þrátt fyrir faraldur COVID-19 hafa áætlanir fyrir­tækisins gengið upp síðustu vikur og í sumar verður kynnt samstarf við fleiri stóra fram­leiðendur drykkjar­vara.

Á hverju ári eru framleidd um 300 milljón tonn af plasti úr jarðefna­eldsneyti í heiminum. Plastið er m.a. notað í einnota umbúðir og þær hafa því stórt kolefnis­spor. Umbúðir hafa marg­vísleg önnur neikvæð áhrif á umhverfið. Af þeim er sjón­mengun í nátt­úrunni og þá leysast þær með tímanum upp og örplast­sagnir enda sem alvarleg mengun í sjónum. Það tekur margar aldir fyrir örplast að brotna algjör­lega niður.

Umbúðir Avantium eiga að vera vel vökva­þolnar og rann­sóknir sem gerðar hafa verið á þeim sýna að þær geta brotnað niður á um einu ári. Séu þær skildar eftir utandyra, svo sem á víðavangi, tekur það þær nokkur ár að brotna niður.

Ef áætlanir Avantium ganga eftir geta neytendur vænst þess að sjá drykki í þessum umhverfis­vænu umbúðum í hillum verslana árið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár