Boðað til hluthafafundar hjá Sýn í lok mánaðar

Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafa­fundar á síðasta degi ágúst­mánaðar, þar sem stjórnar­kjör mun vafalaust fara fram að kröfu fjár­festingar­félagsins Gavia Invest, sem eignaðist stóran hlut í félaginu undir lok júlí.

Hluthafafundurinn mun fara fram í höfuðstöðvum Sýnar við Suðurlandsbraut.
Hlut­hafa­fund­ur­inn mun fara fram í höf­uð­stöðvum Sýnar við Suð­ur­lands­braut. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Sýnar hf. hefur boðað til hluthafa­fundar, sem haldinn verður að morgni miðvikudagsins 31. ágúst. Fundurinn er boðaður að kröfu félagsins Gavia Invest, sem nýlega keypti rúmlega 16 prósenta hlut í Sýn, að mestu af félagi í eigu Heiðars Guðjóns­sonar fráfar­andi forstjóra félagsins, sem átti 12,72 prósenta hlut.

Eftir að Gavia Invest hafði keypt sig inn í Sýn sendi félagið bréf á stjórn fjar­skipta- og fjölmiðla­fyrir­tækisins með kröfu um stjórnar­kjör og sagði í bréfinu að vegna umtals­verðra breytinga sem orðið hefðu á hluthafa­hópnum væri „rétt að umboð stjórnar félagsins verði endurnýjað og að stjórnar­kjör fari fram.“

Samkvæmt tilkynningu frá stjórn Sýnar verður dagskrá fundarins með þeim hætti að fyrst verður kosið um tillögu Gavia Invest um að bundinn verði endir á kjör­tímabil stjórnarinnar. Ef það verður samþykkt fer fram stjórnar­kjör.

Gavia Invest er nýstofnað fjár­fest­inga­fé­lag sem Jón Skafta­son er í for­svari fyr­ir. Gavia Invest er í eigu þriggja félaga, Capi­tal ehf., E&S 101 ehf. og AB 891 ehf. Eig­endur þess­­ara félaga eru Reynir Grét­­ar­s­­son, Hákon Stef­áns­­son, Jon­­at­han R. Rubini, Andri Gunn­­ar­s­­son, Mark Kroloff og áður­nefndur Jón Skafta­­son.

Hann hefur á umliðnum árum verið náin sam­starfs­maður hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar Ingi­bjargar Pálma­dóttur og var fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Strengs og fjár­fest­inga hjá 365 þangað til fyrr á þessu ári. Hann er auk þess giftur Hildi Björns­dótt­ur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

Eins og Kjarninn fjallaði um í gær vill Gavia Invest fá tvö af fimm sætum í stjórn Sýn, auk þess sem orðrómur hefur verið uppi um að félagið vilji fá sinn mann í forstjóra­stólinn. Þá er Jón Skaftason helst nefndur til leiks.

Sýn er stór leik­andi á fjöl­miðla­­mark­aði. Fyr­ir­tækið á og rekur sjón­­varps­­stöðv­­­arnar Stöð 2 og Stöð 2 Sport, vef­mið­il­inn Vísi og útvarps­­­stöðv­­­arnar Byglj­una, FM957 og X977. Innan veggja fyr­ir­tæk­is­ins er rekin stór frétta­­stofa, sam­eig­in­­leg frétta­­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unn­­ar. Þá á Sýn einnig fjar­­skipta­­fyr­ir­tækið Voda­­fo­­ne.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár