ESB vill að ríki opni landamæri á ný til að bjarga Schengen

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins vill að ríki sambandsins aflétti vegabréfa­eftirliti á innri landa­mærum fyrir lok þessa árs, til þess að bjarga Schengen-samstarfinu, einu helsta afreki Evrópu­samvinnu. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu frá framkvæmda­stjórninni, sem breska blaðið Guardian hefur séð og skrifar um í dag.

Landamæra­eftirlit og ýmiss konar landamæri hafa birst innan Evrópu í tengslum við flóttamanna­vandann í álfunni. Frá því í september í fyrra hafa átta ríki innan Schengen-svæðisins tekið upp landamæra­eftirlit á ný. Samkvæmt skýrslu­drögunum hefur landamæra­eftirlit vakið upp spurningar um raun­verulega virkni Schengen svæðisins og frjálsrar farar. Nú sé kominn tími fyrir ríki til að taka sig saman og láta hagsmuni svæðisins alls ráða, til þess að halda einu helsta afreki sambandsins gangandi. Skýrslan verður gerð opinber á föstu­daginn.

Framkvæmda­stjórnin vill að þessum landamæra­lokunum verði aflétt eins fljótt og hægt er og ekki síðar en í nóvember 2016. Hún vill hins vegar líka að eftir­litið á ytri landa­mærum Schengen verði eflt verulega, og mun á ný vara Grikki við því að þeir verði mögulega látnir víkja úr Schengen ef þeim tekst ekki að bæta landamæra­eftirlit í maí.

Skýrslan er gerð nú í aðdragana fundar ESB og Tyrklands um flótta­mannamálin, sem hefst eftir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár