Ógagnsætt ferli þegar ráðuneyti völdu fyrrverandi þingmenn sem ráðgjafa

Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við kaup ýmissa ráðu­neyta á sér­fræði­þjón­ustu í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt.

Ríkisendurskoðun nefnir sérstaklega viðskipti Fjármálaráðuneytisins við lögmannstofuna Juris, en þeim var komið á með tölvupósti.
Rík­is­end­ur­skoðun nefnir sér­stak­lega við­skipti Fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við lög­mann­stof­una Juris, en þeim var komið á með tölvu­pósti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar, Kaup ráðu­neyta á sér­fræði­þjón­ustu, kemur fram að kaup á sér­fræði­þjón­ustu hafi í mörgum til­fellum „ekki verið í fullu sam­ræmi við lög, reglur og leið­bein­ingar stjórn­valda” í ráðu­neyt­unum. Ekki voru gerðir lög­gildir samn­ingar um þjón­ust­una, val á verk­sala var oft ógagn­sætt og ramma­samn­ingar van­nýttir. Enn fremur virtu ráðu­neytin ekki alltaf upp­boðs­skyldu á kaupum á stórum verk­efnum.

Á meðal þeirra atvika sem Ríki­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við er ógagn­sæi í vali ýmissa ráðu­neyta á ráð­gjafa, þar á meðal Siv Frið­leifs­dóttur fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið, Björgvin G. Sig­urðs­son fyrir mennta­mála­ráðu­neytið og Tryggva Þór Her­berts­son fyrir fjár­mála­ráðu­neytið. Öll þrjú eru fyrr­ver­andi þing­menn.

Fjármálaráðuneytið stærsti kaupandinn

Á árunum 2013-2015 keyptu ráðu­neytin sér­fræði­þjón­ustu fyrir u.þ.b. 2,5 millj­arða króna, en árlegur kostn­aður hækk­aði stöðugt úr 700 millj­ónum upp í millj­arð á tíma­bil­inu. Aðkeypt sér­fræði­þjón­usta ráðu­neyta fellur að mestu leyti undir þrjá flokka: Lög­fræði­þjón­ustu, aðra sér­fræði­þjón­ustu og rekstr­ar­ráð­gjöf. Mynd að neðan sýnir hvernig kaup á sér­fræði­þjón­ustu dreifast eftir ráðu­neyt­unum, en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eyddi lang­mestu í aðkeyptri sér­fræði­þjón­ustu á tíma­bil­inu.

Í úttekt­inni kemur fram að við kaupum á sér­fræði­verk­efnum hafi ráðu­neytin oft aðeins haft sam­band við einn aðila sem gjarnan hafi sinnt verk­efnum fyrir ráðu­neytið áður. Slík vinnu­brögð séu ekki í sam­ræmi við ákvæði laga um jafn­ræði og gagn­sæi.

Ekkert ráðu­neyt­anna fór í útboð eða örút­boð innan ramma­samn­inga á tíma­bil­inu vegna kaupa á sér­fræði­þjón­ustu þar sem þau telja það vera of dýrt og tíma­frekt fyrir verk­efnin, sem oft­ast væru lítil og sér­hæfð. Auk þess töldu ráðu­neytin sig oft ekki hafa tíma eða mann­skap til að kynna sér ítar­lega ramma­samn­inga fyrir hvert verk­efni. Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við þá rök­semd­ar­færslu og telur aukna notkun heim­ilda innan ramma­samn­ings­ins muni leiða til auk­innar hag­kvæmni við kaup á þjón­ustu.

Þar sem ramma­samn­ingur hafi ekki verið end­ur­nýj­aður árið 2013 hvetur Rík­is­end­ur­skoðun inn­kaupa­stofnun rík­is­ins, Rík­is­kaup, á að skýra verk­ferla um kaup opin­berra aðila á lög­fræði­þjón­ustu, hvort sem það er með nýjum ramma­samn­ingi eða með öðrum hætti.

Meðal þeirra athuga­semda sem Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við eru:

  • Kaup sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­að­stoð Bonafide-lög­manna og Lex ehf. vegna end­ur­skoð­unar á lög­gjöf um fisk­veiði­stjórnun, en þau voru utan ramma­samn­inga. 
  • Kaup fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­þjón­ustu Juris slf. vegna aðstoðar í þjóð­lendu­málum, en samn­ingur um þjón­ust­una er ekki í sam­ræmi við leið­bein­ingar sem ráðu­neytið sjálft beini til ann­arra. 
  • Kaup vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á lög­fræði­þjón­ustu Láru Áslaugu Sverr­is­dóttur lög­mann til að vinna að úrskurðum fyrir kæru­nefnd greiðslu­að­lög­un­ar­mála. Enginn samn­ingur var gerður fyrir þjón­ust­una, en hún kost­aði 41,4 millj­ónir króna. 
  • Kaup for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála­ráðu­neytis á ráð­gjöf fyr­ir­tæk­is­ins Analytica áhættu- og fjár­fest­inga­ráð­gjöf ehf. vegna þjóð­hags­legra áhrifa höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­lána og afnáms verð­trygg­ingar. Þótt Analytica hafi verið innan ramma­samn­inga voru þeir ekki nýttir við kaupin.
  • Kaup vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á þjón­ustu Ráða­bótar ehf. vegna könn­unar á upp­lýs­inga­miðlun milli sveit­ar­fé­laga vegna veit­ingu rétt­inda til ein­stak­linga. Hvorki var gerður samn­ingur né kostn­að­ar­á­ætlun og ekki var ákveðið um gjald þjón­ust­unnar. 
  • Ógagnsæi í vali ýmissa ráðu­neyta á ráð­gjafa, þar á meðal Siv Frið­leifs­dóttur fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið, Björgvin G. Sig­urðs­son fyrir mennta­mála­ráðu­neytið og Tryggva Þór Her­berts­son fyrir fjár­mála­ráðu­neytið.

Viðskiptum komið á með tölvupósti

Lög­manns­stofan Juris var tekin til sér­stakrar skoð­unar í úttekt­inni vegna umfangs­mik­illa við­skipta við fjár­mála-og efna­hags­ráðu­neytið. Á tíma­bil­inu 2013-2015 greiddi ráðu­neytið stof­unni alls 107 millj­ónir króna, þar af 92 millj­ónir vegna mála um eign­ar­hald á þjóð­lendum. Samkvæmt ráðu­neyt­inu á samn­ing­ur­inn um þjóð­lendu­mál að hafa kom­ist á með tölvu­pósts­sam­skiptum starfs­manna ráðu­neyt­is­ins og lög­manns­stof­unnar árið 2006. Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við hvernig staðið hafi verið að samn­ings­gerð og kaupum á þessu verk­efni og ráð­leggur ráðu­neyt­inu að gera form­legan samn­ing. Fjár­mála­ráðu­neytið fari með mál­efni opin­berra inn­kaupa og ættu vinnu­brögð þess í þeim málum að vera til fyr­ir­myndar.

Í kjöl­far úttekt­ar­innar kom fram yfir­lýs­ing frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu um að samn­ingur við lög­manns­stof­una Juris sé í end­ur­skoðun. Ráðu­neytið tekur undir ábend­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar, en telur þó að hag­kvæmni, gæði þjón­ustu, jafn­ræði selj­enda, gagn­sæi og verð­sam­an­burður hafi verið tryggður í umræddum við­skiptum við Juris.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár