Fyrrverandi kærasta Lubitz segir hann hafa verið geðveikan

Fyrr­verandi kærasta aðstoðar­flug­mannsins Andreas Lubitz, segir hann hafa glímt við geðræn vandamál, en þýska dagblaðið Bild birti umfjöllun í dag, þar sem rætt er við hana undir nafnleynd. Lubitz flaug flugvélv Germanwings viljandi á frönsku alpanna með þeim afleiðingum að allir um borð létu lífið, 150 manns.

Í umfjölluninni lýsir hún Lubitz þannig, að hann hafi vaknað um miðjar nætur, öskrandi, og einnig skipt skapi leiftur­snöggt og tekið upp á hlutum sem augljós­lega voru ekki eðlilegir. Inn á milli hafa hann síðan verið ósköp venju­legur og vingjarnlegur.

Þannig hafi hann í eitt skipti læst sig inn á klósetti í nokkurn tíma eftir að hafa æst sjálfan sig upp í rifrildi.

Konan, sem starfar sem flug­freyja, átti í sambandi við manninn í fimm mánuði áður en hún sleit sambandi við hann. „Ég hætti með hon­um því það varð alltaf aug­ljós­ara og aug­ljós­ara að hann glímdi við vanda­mál,“ segir í umfjöllun Bild.

Lufthansa, móður­félag Germanwings, ákvað í gær að greiða aðstand­endum þeirra sem létust 50 þúsund evrur, um 7,5 milljón króna, á hvern farþega. Rann­sóknin á tildrögum þess að Lubitz flaug vélinn inn í frönsku alpanna stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár