Fylgi Trumps niður um 9% í fyrstu könnun eftir Iowa

Donald Trump hefur aðeins fjögurra prósenta forskot á helstu keppinauta sína í barátt­unni um útnefningu Repúblikana­flokksins til forseta Banda­ríkjanna, samkvæmt nýrri skoðana­könnun. Þetta er fyrsta skoðana­könnunin sem gerð var á landsvísu eftir kjör­fundinn í Iowa á mánudag. Það er Public Policy Polling sem gerði könnunina, en í síðustu könnun þeirra vikuna fyrir jól mældist Trump með 34% fylgi.

Trump er nú með 25% stuðning samkvæmt könnuninni, á meðan bæði Ted Cruz og Marco Rubio mælast með 21% stuðning. Cruz var í efsta sætinu á kjör­fundinum í Iowa en Donald Trump rétt hafði betur en Rubio.

Af öðrum fram­bjóðendum mælist Ben Carson best, með 11% fylgi, á meðan Jeb Bush, John Kasich og Rand Paul voru með fimm prósent, Chris Christie og Carly Fiorina með þrjú prósent hvort og Jim Gilmore með eitt prósent. Rick Santorum fékk 0,0 prósent í könnuninni, þar sem enginn aðspurðra valdi hann. Santorum er nú búinn að draga sig út úr barátt­unni, rétt eins og Rand Paul.

Samkvæmt könnuninni hafa vinsældir Trump meðal kjósenda minnkað verulega á meðan Rubio virðist vera maður augna­bliksins. Hann hefur farið úr 13% í 21 prósent á meðan Cruz er með nokkuð stöðugt fylgi jafnvel þótt hann hafi borið sigur úr býtum í Iowa.

Hjá demó­krötum færir Bernie Sanders sig ofar á kostnað Hillary Clinton, en Clinton er engu að síður með mikið forskot, 53% gegn 32% Sanders.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár