New York Times: Efnahagsleg umsvif ISIS gríðarleg í Írak

Eignir Íslamska ríkisins, ISIS, í Írak voru í júní í fyrra metnar á 875 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 114 milljörðum íslenskra króna, en samtökin eru talin ná til sín um einni milljón Bandaríkja­dala, um 130 milljónum króna, á hverjum degi þessi misserin. Þetta kemur fram í frétta­skýringu um fjár­mögnun ISIS í New York Times í dag.

Stærstu hlut fjár­magnsins sem ISIS hefur komist yfir er í gegnum fjár­kúgunar­aðferðir og skatta á eignir, á þeim svæðum þar sem ISIS fer með stjórn, einkum á stórum iðnaðar­svæðum í Írak. Í fyrra er talið að heildar­tekjur ISIS hafi verið um 1,2 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 160 milljörðum króna.

Þar af komu 600 milljónir Bandaríkja­dala í gegnum fjár­kúganir og skatt­lagningu, en starfs­menn sem eru á vegum hins opinbera í Írak, á svæðum þar sem ISIS fer með stjórn, þurfa að greiða 50 prósent skatt af launum sínum og öðrum tekjum. Fyrirtæki greiða síðan um 20 prósent skatt beint til ISIS, segir í umfjöllun New York Times. Þá komu um 100 milljónir Bandaríkja­dala í gegnum olíu­lindir sem ISIS ræður yfir, en undan­farna sex mánuði hefur Bandaríkjaher linnulítið gert loft­árásir á ýmsa innviði sem samtökin ráða yfir, og þannig veikt þau.

ISIS eru hins vegar talin hafa stolið meira en 500 milljónum Bandaríkja­dala frá opinberum bönkum í Írak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár