Aldrei of seint að fullnægja réttlætinu

Simon Wiesenthal stofnunin freistar þess nú að fá níræðan Dana dreginn fyrir rétt vegna stríðs­glæpa í heim­styrjöldinni síðari. Maðurinn er fimmti efsti á lista Wiesenthal stofnunarinnar yfir þá sem hún telur hafa framið stríðs­glæpi gegn gyðingum á stríðs­árunum.

Á Friðriks­bergi við Kaupmanna­höfn býr Helmuth Leif Rasmussen, níræður að aldri. Það er þó ekki hans rétta nafn því hann hefur í áratugi gengið undir öðru nafni. Allt frá árinu 1945.

Í fyrra­haust kom út í Danmörku bók sem ber heitið „En skole i vold“. Bókin fjallar um þátttöku ungra Dana í samtökum sem báru nafnið Frikorps Danmark og voru stofnuð 1941. Þeir sem gengu í samtökin voru tilbúnir til að vinna með Þjóð­verjum, bæði utan Danmerkur og innanlands. Það var útkoma þessarar bókar sem beindi athygli Wiesentahl stofnunarinnar að Helmuth Leif Rasmussen þótt stofnunin hafi lengi vitað um hann.

Bobruisk fangabúðirnar


Eftir að stríð­inu lauk yfir­heyrði danska lög­reglan Helmuth Leif Rasmus­sen, sem þá var tví­tugur, vegna þátt­töku hans í stríð­inu. Í skýrslum lög­regl­unnar lýsir Helmuth Leif Rasmus­sen störfum sínum í fanga­búðum nas­ista við bæinn Bobruisk í Hvíta-Rúss­landi en þangað var hann sendur til starfa, 17 ára gam­all, ásamt fleiri ungum löndum sínum. Áður en Danirnir komu til Bobruisk dvöldu þeir um tíma í Sennheim í Þýska­landi og einnig í Treskau í Póllandi. Samkvæmt frá­sögn Helmuth Leif Rasmus­sen starf­aði hann, ásamt félögum sínum, sem nýliði í fanga­búð­unum í Bobruisk en gegndi þar aldrei form­legri stöðu enda ungur að aldri eins og áður sagði. Við skýrslu­töku lög­regl­unnar lýsti hann því að hann hefði margoft orðið vitni að aftökum fanga sem áður höfðu unnið ýmis störf til dæmis við hrein­gern­ingar og snjó­mokstur. Þegar kraft­ana þraut, fyrst og fremst vegna nær­ing­ar­skorts voru þeir látnir afklæð­ast og síðan skotnir. Líkunum var fleygt í fjölda­gröf skammt frá fanga­búð­unum. „Ég hlýddi skip­unum, gat ekki annað“ sagði Helmuth Leif Rasmus­sen við skýrslu­tök­una og lagði áherslu á að hann hefði aldrei verið annað en nýliði í búð­unum.

Hlaut dóm eftir stríð


Vegna þátt­töku sinnar í stríð­inu og starfa fyrir Þjóð­verja hlaut Helmuth Leif Rasmus­sen þriggja ára fang­els­is­dóm, sem hann afplán­aði. Svipaða dóma fengu margir aðrir sem gengið höfðu til liðs við Frikorps Danmark. Hann gift­ist síðar og eign­að­ist eina dóttur. Um tutt­ugu ára skeið var hann tækni­maður (ljósamaður) hjá kvik­mynda- og sjón­varps­fram­leið­and­anum Nordisk Film uns hann fór á eft­ir­laun. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkrum dögum sagði Helmuth Leif Rasmus­sen að hann vildi óska að hann hefði aldrei gengið í Frikorps Danmark, en maður gæti ekki snúið gangi sög­unnar.

Wiesenthal stofnunin kærir


Simon Wiesenthal stofn­unin ætlar nú að freista þess að fá Helmuth Leif Rasmus­sen dreg­inn fyrir dóm í Danmörku. Efraim Zuroff, sem er yfir­maður rann­sókn­ar­deildar stofn­un­ar­innar er staddur í Kaup­manna­höfn þeirra erinda að leggja fram kæru á hendur Helmuth Leif Rasmus­sen hjá lög­reglu. Efraim Zuroff seg­ist hafa undir höndum gögn, sem hann vill ekki greina nánar frá, sem hann byggi kæruna á. Hann ítrekar að stríðs­glæpir af þessu tagi fyrn­ist aldrei og bendir á nýupp­kveð­inn fjög­urra ára fang­els­is­dóm yfir Oscar Gröning, bók­hald­ar­anum frá Auschwitz. Efraim Zuroff sagði að á skrá Wiesenthal stofn­un­ar­innar væri að finna nöfn tutt­ugu ann­arra Dana, sem full ástæða væri til að kanna nánar. Hann vildi í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske ekki útskýra málið frekar og ekki nefna nein nöfn. „Það ger­ist kannski síðar“ sagði hann.

Sönnunarbyrðin erfið


Danskir sér­fræð­ingar í refsirétti telja fremur ólík­legt að dóms­mál verði höfðað á hendur Helmuth Leif Rasmus­sen. Til þess þurfi sönn­un­ar­gögnin að vera mjög afger­andi. Mikkel Thastrum fjöl­miðla­full­trúi danska ákæru­valds­ins sagði að vand­lega yrði farið yfir þau gögn sem Wiesenthal stofn­unin legði fram. Fyrr en það hefði verið gert væri ekki meira um málið að segja.

Fáir Danir verið dæmdir


Sér­fræð­ingar í refsirétti og sagn­fræð­ingar sem fjöl­miðlar hafa rætt við vegna hinnar fyr­ir­hug­uðu kæru Wiesenthal stofn­un­ar­innar á hendur Helmuth Leif Rasmus­sen segja það reyndar sér­kenni­legt hvað danskir dóm­stólar hafi haft tak­mark­aðan áhuga fyrir því hvað danskir þegnar, til dæmis þeir sem unnu með Þjóð­verjum, hafi tekið sér fyrir hendur utan land­stein­anna á stríðs­ár­unum. Ditlev Tamm, laga­pró­fessor við Hafn­ar­há­skóla, segir að Danir hafi í þessum efnum farið mild­ari höndum um þegna sína en margar aðrar þjóðir, það væri í raun verð­ugt rann­sókn­ar­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár