Meirihlutinn í Reykjanesbæ hvetur Arion banka og Thorsil til að falla frá áformum

Deildar mein­ingar eru í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar.

Arion banki og Thorsil eru í yfir­lýs­ingu frá meiri­hluta bæj­ar­full­trúa í Reykja­nesbæ hvött til að falla frá öllum áformum um upp­bygg­ingu og rekstur kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík.

Frá þessu er greint á vef Vík­ur­frétta.

Bæj­ar­full­trú­arnir hvetja þessa aðila til að taka frekar þátt í annarri atvinnu­upp­bygg­ingu í sátt við fólkið í sveit­ar­fé­lag­inu og umhverfið. Yfir­lýs­ingin var sam­þykkt á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­nesbæ í dag.

Félagið Stakks­berg ehf., sem er í eigu Arion banka, vinnur að því að koma verk­smiðju af stað á nýjan leik, sem áður var í eigu United Silicon, sem fór í gjald­þrot skömmu eftir að hún hóf starf­semi.

Í yfir­lýs­ingu segir, sam­kvæmt frétt Vík­ur­frétta: „Kís­il­veri United Silicon, sem hóf starf­semi sína þann 13. nóv­em­ber 2016 var lokað 1. sept­em­ber 2017 og tekið til gjald­þrota­skipta 22. jan­úar 2018. Þann tíma sem verk­smiðjan var í rekstri olli hún íbúum sveit­ar­fé­lags­ins veru­legum óþæg­indum og jafn­vel veik­indum, vegna meng­unar sem af henni staf­aði. Þá urðu margir fyrir veru­legum fjár­hags­legum skakka­föllum í kjöl­far gjald­þrots verk­smiðj­unnar, s.s. starfs­menn, verk­takar, hlut­hafar og sveit­ar­fé­lagið Reykja­nes­bær. Nú hafa verið kynntar áætl­anir um að hefja rekstur verk­smiðj­unnar að nýju og ætlar nýr eig­andi, Arion Banki, að eyða veru­legum fjár­munum í lag­fær­ingar á verk­smiðj­unni. Þá áformar hluta­fé­lagið Thorsil einnig að hefja rekstur sams­konar verk­smiðju á sama stað í Helguvík, um 2 km frá þéttri byggð, stein­snar frá leik­skóla og grunn­skóla í bænum.

Ljóst er að íbúar Reykja­nes­bæjar hafa af þessu veru­legar áhyggjur í ljósi fyrri reynslu af slíkum rekstri. United Silicon hafði ein­ungis komið einum ofni í gang þann tíma sem fyr­ir­tækið starf­aði en áætl­anir gera ráð fyrir að ofn­arnir geti alls orðið sjö með til­heyr­andi mengun.

Und­ir­rit­aðir bæj­ar­full­trúar taka fylli­lega undir áhyggjur ann­arra íbúa og telja að nú sé orðið ljóst að starf­semi af þessu tagi henti alls ekki í nálægð við þétta íbúa­byggð. Sökum þess viljum við skora á hlut­að­eig­andi aðila, bæði Arion banka og Thorsil að falla frá öllum áformum um upp­bygg­ingu og rekstur kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík og hvetja þá til að taka frekar þátt í annarri atvinnu­upp­bygg­ingu í sátt við fólkið í sveit­ar­fé­lag­inu og umhverfið.“ Undir yfir­lýs­ing­una rita allir bæj­ar­full­trúar meiri­hlut­ans, auk bæj­ar­full­trúa Mið­flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er í minni­hluta í bæj­ar­stjórn, tekur ekki undir yfir­lýs­ingu meiri­hlut­ans.

Í bókun hans segir að fjöl­breyttar stoðir verði að vera undir atvinnu­líf­inu í Reykja­nesbæ. Hann segir þó að eng­ann afslátt eigi að gefa á umhverf­is­þáttum þegar komi að upp­bygg­ing­unni í Helguvík. „Saga kís­il­vers United Silicon frá því það hóf starf­semi sína 2016 og þá tíu mán­uði sem það starf­aði er okkur öllum kunn og ljóst er að þau mis­tök sem gerð voru í und­ir­bún­ingi og rekstri versk­miðj­unnar mega ekki end­ur­taka sig. Íbúar í Reykja­nesbæ þekkja mik­il­vægi þess að hafa fjöl­breytt atvinnu­líf. Rúmlega þús­und manns misstu atvinn­una við brott­hvarf Varn­ar­liðs­ins fyrir tólf árum. Í banka­hruni tveimur árum síðar misstu enn fleiri atvinn­una og nú síð­ast fyrir tveimur mán­uðum var á þriðja hund­rað manns sagt upp störfum á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna óvissu í flug­rekstri. Bæj­ar­full­trúar D-list­ans geta því ekki tekið undir áskorun meiri­hluta bæj­ar­stjórnar um að Stakks­berg og Thorsil falli frá áformum sínum um upp­bygg­ingu kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík.

D-list­inn leggur, eftir sem áður, áherslu á að það verði eng­inn afsláttur gef­inn af umhverfis­kröfum og eft­ir­liti með upp­bygg­ingu og atvinnu­starf­semi í Helguvík. Bæj­ar­full­trúar D-list­ans skora á þessi sömu fyr­ir­tæki að eiga rík­ara sam­ráð við íbúa um fram­vindu mála og tryggja að unnið verði að upp­bygg­ingu í Helguvík sem er í sátt við íbúa og umhverfi Reykja­nes­bæjar,“ segir í bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórna.

Í bókun full­trúa frá Frjálsu afli er tekið, fram að ef upp­bygg­ingin eigi að fara fram, þurfi að tryggja að íbúar finni ekki fyrir óþæg­indum eða mengun. Besta fáan­lega búnað þurfi að nota, til að koma í veg fyrir mengun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár