Gervigreind notuð við gerð umbúða: „Ekki hættir að nota listamenn og grafíska hönnuði“

Skiptar skoðanir eru á umbúðum utan af jóla­ískúlu frá Kjörís, en notast var við gervi­greind við gerð hennar. Markaðs­stjóri fyrir­tækisins segir fyrir­tækið ekki hafa hug á því að starfa í andstöðu við markaðinn en vill þó nýta gervi­greindina vel.

Tæknin
Tæknin Mark­aðs­stjóri Kjöríss segir að gervi­greind hafi verið nýtt við gerð teikn­ing­ar­innar. Mynd: Aðalsteinn

„Þessar tilteknu umbúðir eru að mér vitandi ekki gerðar fullkomlega af gervi­greind þótt gervi­greind hafi verið notuð,“ segir Elías Þorvarðarson, markaðs­stjóri Kjöríss, um umbúðir jólaíss fyrir­tækisins. „Það eru margir sem halda að umbúðirnar í heild sinni séu hannaðar af gervi­greind – en gervi­greind er nýtt við teikninguna.“

Nýlega sköpuðust umræður á samfélags­miðlum um það að Kjörís væri mögulega að notast við gervi­greind í myndum á umbúðum utan af ís. 

Í því samhengi var athygli vakin á pakkningum utan af jóla­ískúlu frá Kjörís en bent var á að á þeim væri mynd með gulum blæ, sem er eitt einkenni gervi­greindar­mynda. Þá er öll áferð myndanna á umbúðunum mjög í anda þeirra mynda sem gervi­greindar­forrit framleiða.

Lagðist þetta mjög misvel í netverja, sem fannst sumum myndin bera með sér sálar­leysi og verklagið einkennast af tregðu við að greiða lista­fólki fyrir vinnu sína.

„Leti og matargerð fara ekki …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár