Björgólfur kominn með prókúru hjá Samherja

Tíma­bund­inn for­stjóri Samherja hefur loks form­lega verið skráður í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins og með pró­kúru fyrir það, þremur mán­uðum eftir að hann tók við starf­inu. Hann er hins vegar enn ekki skráður með pró­kúru hjá Samherja Holding.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, þegar hann tók við starf­inu. Mynd: Samherji

Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, er nú skráður í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins og með pró­kúru, sem veitir heim­ild til úttektar af banka­reikn­ing­um, fyrir það í fyr­ir­tækja­skrá rík­is­skatt­stjóra.

Móttaka gagna vegna þessa átti sér stað 11. febr­úar 2020 sam­kvæmt gögnum sem hægt er að nálg­ast í fyr­ir­tækja­skrá,eða dag­inn eftir að Kjarninn fjall­aði um málið.

Í þeim gögnum kemur fram að stjórn Samherja hafi bókað, á fundi sínum þann 14. nóv­em­ber 2019, að Björgólfur hefði verið ráð­inn for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sam­hliða því að Þor­steinn Már Bald­vins­son hefði ákveðið að stíga til hliðar úr því starfi, að minnsta kosti tíma­bundið. Í þeirri bókun var Björgólfi veitt pró­kúru­um­boð og Þor­steinn Már afsal­aði sér sínu umboði sam­hliða. Það láð­ist hins vegar að senda til­kynn­ingu þess efnis til fyr­ir­tækja­skráar.

Um þessa breyt­ingu var þó ekki til­kynnt til fyr­ir­tækja­skráar fyrr en 30. jan­úar. Athuga­semdir voru gerðar við þá til­kynn­ingu sem Samherji þurfti að bregð­ast við. Það hefur nú verið gert.

Sam­kvæmt skrán­ingu í hluta­fé­laga­skrá er Björgólfur því nú skráður í fram­kvæmda­stjórn Sam­herja hf. og með pró­kúru ásamt Jóni Rafni Ragn­ars­syni, fjár­mála­stjóra sam­stæð­unn­ar. Sömu sögu er þó ekki að segja í hinu félag­inu sem myndar uppi­stöðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Samherja Holding. Þar er Þor­steinn Már en skráður í fram­kvæmda­stjórn og með pró­kúru ásamt Jóni Rafni.

Sam­herj­a­sam­stæð­unni var skipt upp í áður­nefnd tvö félög á árinu 2018. Sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­­örðum króna. Eigið fé sam­­stæð­unnar var 110,7 millj­­arðar króna í lok þess árs. Því er um risa­vaxið fyr­ir­tæki að ræða með starf­semi í fjöl­mörgum lönd­um.

Steig til hliðar eftir Kveik

Þann 12. nóv­em­ber 2019 birt­ist umfjöllun Kveiks, Stund­­­­­ar­inn­­­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­­­­u­greiðsl­­­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­­­þús­undum gagna og upp­­­­­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­­­son­­­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­­­manns Sam­herja í Namib­­­­­íu.

Tveimur dögum síðar til­kynnti Sam­herji að Þor­steinn Már, sem er aðal­eig­andi Sam­herja ásamt frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni og fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dótt­ur, hefði stigið tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri og að Björgólfur tæki við, sömu­leiðis tíma­bund­ið.

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir Eiríki S. Jóhann­essyni, stjórn­­­ar­­for­­manni Sam­herja, að þetta skref væri stigið til að tryggja sem best hlut­­leysi rann­­sókn­­ar­ norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á ætl­uðum brotum Sam­herja. „Við viljum stunda heið­­ar­­leg við­­skipti og leggjum okkur fram um að starfa í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­­ur.“

Rann­sókn Wikborg Rein heyrir beint undir stjórn Sam­herja og fyr­ir­tækið greiðir fyrir hana.

Ekki úti­lokað að Þor­steinn Már snúi aftur

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans er stefnt að því að nið­ur­stöður Wikborg Rein liggi fyrir í lok mars eða byrjun apríl næst­kom­andi. Yfir­­völd í Namib­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi eru einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­a­máls­ins, meðal ann­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­is­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins.

Í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv sem birt var um miðjan des­em­ber í fyrra sagði Björgólfur að hann bygg­ist við því að hann myndi ljúka hlut­verki sínu sem tíma­bund­inn for­­stjóri Sam­herja á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2020.

Í við­tali við vef­mið­il­inn Intra­fish, sem sér­­hæfir sig í umfjöllun um sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­mál, ­sem birt var í jan­úar var hafði sá tími sem Björgólfur vænti þess að vera í starfi þó lengst. Þar sagð­ist hann ekki reikna með því að sitja í for­stjóra­stólnum lengur en fram á mitt ár 2020. Þar úti­lok­aði Björgólfur enn fremur ekki að Þor­steinn Már myndi snúa aftur í stól­inn. „Hann hefur verið starf­andi í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á Íslandi í mörg ár og er lík­­­lega sá náungi sem veit mest um sjá­v­­­ar­út­­­veg á Íslandi og í Evr­­ópu,“ sagði Björgólfur um Þor­­stein Má.

Í síð­ustu viku greindi Björgólfur frá því að hann myndi hætta sem for­stjóri fyrir lok mars­mán­aðar. Hann sagði að reikna mætti með því að Þor­steinn Már tæki aftur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár