Björgólfur verið forstjóri Samherja í tæpa þrjá mánuði en er ekki með prókúru

Samherji til­kynnti fyrst um breyta pró­kúru hjá fyr­ir­tæk­inu eftir for­stjóra­skipti þann 30. jan­úar 2020, tveimur og hálfum mán­uði eftir að þau áttu sér stað. Athuga­semdir voru gerðar við til­kynn­ing­una og hún ekki tekin gild.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, og Þorsteinn Már Baldvinsson, sem steig niður úr forstjórastólnum tímabundið í nóvember 2019.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig niður úr for­stjóra­stólnum tíma­bundið í nóv­em­ber 2019. Mynd: Samherji

Þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið um að Björgólfur Jóhanns­son tæki við tíma­bundið sem for­stjóri Samherja þann 14. nóv­em­ber 2019, fyrir tæpum þremur mán­uðum síðan, er hann hvorki skráður í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins né með pró­kúru, sem veitir heim­ild til úttektar af banka­reikn­ingum, fyrir það í hluta­fé­laga­skrá rík­is­skatt­stjóra.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir tals­kona Samherja að fyr­ir­tækið hafi til­kynnt um breytta pró­kúru hinn 30. jan­úar síð­ast­lið­inn í sam­ræmi við ákvörðun stjórnar Samherja um ráðn­ingu hins nýja for­stjóra. Það komu hins vegar fram athuga­semdir við til­kynn­ing­una sem Samherji þurfti að bregð­ast við og er verið að vinna í því að senda inn nýja til­kynn­ingu sem við teljum að komi til móts við þær athuga­semdir sem bár­ust. Ákvörðun stjórnar Samherja frá 14. nóv­em­ber sl. um ráðn­ingu nýs for­stjóra tíma­bundið stendur og hefur Björgólfur Jóhanns­son verið for­stjóri félags­ins frá þeim tíma.“

Samkvæmt skrán­ingu í hluta­fé­laga­skrá er Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem steig tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri Samherja á sama tíma og Björgólfur var ráð­inn, enn skráður í fram­kvæmda­stjórn bæði Samherja hf. og Samherja Holding ehf., sem saman mynda uppi­stöðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Hann er einnig skráður með pró­kúru hjá báðum félögum ásamt Jóni Rafni Ragn­ars­syni, fjár­mála­stjóra sam­stæð­unnar. Aðspurð um þessa skrán­ingu segir tals­kona Samherja að Þor­steinn Már hafi látið af störfum sem for­stjóri þann 14. nóv­em­ber og hafi „ekki verið í fram­kvæmda­stjórn frá þeim tíma. Prókúra hans féll niður frá sama tíma.“

Sam­herj­a­sam­stæð­unni var skipt upp í áður­nefnd tvö félög á árinu 2018. Sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæð­unnar var 110,7 millj­arðar króna í lok þess árs. Því er um risa­vaxið fyr­ir­tæki að ræða með starf­semi í fjöl­mörgum löndum. 

Steig til hliðar eftir Kveik

Þann 12. nóv­em­ber 2019 birt­ist umfjöllun Kveiks, Stund­­­­ar­inn­­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­­­u­greiðsl­­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­­þús­undum gagna og upp­­­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­­manns Sam­herja í Namib­­­­íu.

Tveimur dögum síðar til­kynnti Samherji að Þor­steinn Már, sem er aðal­eig­andi Samherja ásamt frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni og fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dóttur, hefði stigið tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri og að Björgólfur tæki við, sömu­leiðis tíma­bundið.

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir Eiríki S. Jóhann­essyni, stjórn­ar­for­manni Sam­herja, að þetta skref væri stigið til að tryggja sem best hlut­leysi rann­sókn­ar­ norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á ætl­uðum brotum Samherja. „Við viljum stunda heið­ar­leg við­skipti og leggjum okkur fram um að starfa í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­ur.“

Rannsókn Wikborg Rein heyrir beint undir stjórn Samherja og fyr­ir­tækið greiðir fyrir hana.

Ekki útilokað að Þorsteinn Már snúi aftur

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er stefnt að því að nið­ur­stöður Wikborg Rein liggi fyrir í apríl næst­kom­andi. Yfir­völd í Namib­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi eru einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­a­máls­ins, meðal ann­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­is­stjórn lands­ins.

Í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv sem birt var um miðjan des­em­ber í fyrra sagði Björgólfur að hann bygg­ist við því að hann myndi ljúka hlut­verki sínu sem tíma­bund­inn for­stjóri Sam­herja á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2020.

Í við­tali við vef­mið­il­inn Intra­fish, sem sér­hæfir sig í umfjöllun um sjáv­ar­út­vegs­mál, ­sem birt var í jan­úar var hafði sá tími sem Björgólfur vænti þess að vera í starfi þó lengst. Þar sagð­ist hann ekki reikna með því að sitja í for­stjóra­stólnum lengur en fram á mitt ár 2020. Þar úti­lok­aði Björgólfur enn fremur ekki að Þor­steinn Már myndi snúa aftur í stól­inn. „Hann hefur verið starf­andi í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi í mörg ár og er lík­lega sá náungi sem veit mest um sjáv­ar­út­veg á Íslandi og í Evr­ópu,“ sagði Björgólfur um Þor­stein Má.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár