Tíu staðreyndir um áfengisfrumvarpið

Hvað felst í því, hversu lík­legt er að það verði sam­þykkt og hver er afstaða þjóð­ar­innar til að selja áfengi í mat­vöru­versl­unum?

  1. Með frum­varp­inu er lagt til að einka­leyfi Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) á smá­sölu áfengis verði aflagt og að smá­sala verði að ákveðnu merki frjáls. Samhliða verði ÁTVR breytt í „Tóbaks­verslun rík­is­ins“. Þótt það sé ekki sagt berum orðum í grein­ar­gerð frum­varps­ins felur afnám einka­leyf­is­ins í sér að ÁTVR hætti sölu á áfengi.
  2. Lagt er til að þeir smá­salar sem fái að selja áfengi geymi það afmarkað frá annarri sölu­vöru. Það þýðir að áfengið þarf annað hvort að vera bak­við afgreiðslu­borð eða í sér­rými innan versl­unar. Sér­versl­anir sem selja ein­göngu áfengi verða hins vegar und­an­þegnar þess­ari afmörkun.
  3. Verði frum­varpið að lögum má afgreiða áfengi frá klukkan níu á morgn­anna til mið­nættis og starfs­menn sem afgreiða áfengi mega ekki vera yngri en 18 ára.
  4. Sveita­stjórnum verður gert að setja ákveðin skil­yrði fyrir veit­ingu smá­sölu­leyfis. Þær mega hins vegar ekki veita smá­sölu­leyfi til ísbíla, pylsu­vagna og ann­arra fær­an­legra veit­inga­vagna og mark­aðs­bása né fyr­ir­tækja sem reka „smá­sölu mat­væla í sjálf­sölum“.
  5. Heimilt verður að aug­lýsa áfengi í íslenskum fjöl­miðlum. Það skil­yrði fylgir að í öllum aug­lýs­ingum skal koma fram við­vörun um skað­semi áfengis og hvatn­ing um ábyrga neyslu þess. Þá eiga aug­lýsendur áfengis að setja sér siða­reglur um aug­lýs­ingar og kynn­ingar og aug­lýs­ingar mega aldrei bein­ast að börnum eða ung­mennum.
  6. Gert er ráð fyrir því að óheim­ilt verði að selja áfengi undir kostn­að­ar­verði.
  7. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að hægt sé að ná mark­miðum um lág­mörkun á skað­legum áhrifum áfeng­is­neyslu með öðrum leiðum en rík­is­ein­okun á smá­sölu áfengra drykkja.. Eins og stendur rennur eitt pró­sent inn­heimtra áfeng­is­gjalda í Lýð­heilsu­sjóð. Á árinu 2015 var greitt áfeng­is­gjald í rík­is­sjóð 9.230 millj­ónir króna. Það þýðir að 92,3 millj­ónir króna hafi runnið til sjóðs­ins vegna þess árs. Í frum­varp­inu er lagt til að það hlut­fall áfeng­is­gjalds sem renni til Lýð­heilsu­sjóðs verði hækkað í fimm pró­sent. Það myndi þýða að fram­lagið í sjóð­inn, miðað við greidd áfeng­is­gjöld árið 2015, myndu hækka upp í 461,5 millj­ónir króna. Með því verði „eðli­legt og nauð­syn­legt for­varna­starf[...]mark­visst eflt bæði fag­lega og fjár­hags­lega.“
  8. Frum­varpið felur ekki í sér neinar breyt­ingar á áfeng­is­stefnu hins opin­bera, áherslum í tóbaks­vörnum eða breyt­ingum á tekju­öfl­un­ar­kerfi rík­is­ins á þessu sviði.
  9. Alls standa þing­menn fjög­urra flokka að frum­varp­inu. Þeir eru Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn, Björt fram­tíð og Píratar. Þegar frum­varpið var lagt fram taldi Pawel Bartoszek, einn flutn­ings­manna þess, nokkuð öruggt að meiri­hluti væri fyrir því. Síðan þá hafa þing­menn úr öllum flutn­ings­flokk­unum annað hvort lýst yfir and­stöðu eða efa­semdum um það auk þess sem restin af stjórn­ar­and­stöð­unni er á móti því. Meira að segja einn flutn­ings­manna frum­varps­ins, Nicole Leigh Mosty, hefur sagt að hún sé óviss um hvort hún styðji frum­varpið. Líklegt er að atkvæði heil­brigð­is­ráð­herra, Óttarrs Proppé, geti ráðið úrslitum í atkvæða­greiðsl­unni. Hann hefur ekki viljað gefa upp afstöðu sína í mál­inu.
  10. Í könnun sem MMR gerði í síð­asta mán­uði kom fram að 74,3 pró­sent lands­manna væru á móti því að sterkt áfengi verði selt í mat­vöru­búðum og 56,9 pró­sent eru mót­fallin sölu á á léttu áfengi og bjór í slíkum búð­um. Aðeins 15,4 pró­sent svar­enda sögð­ust fylgj­andi því að sterkt áfengi væri selt í mat­vöru­búðum en 32,7 pró­sent sögð­ust hlynnt sölu á léttu áfengi og bjór í búð­u­m.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár