Eriksen og hjartastuðið

Umdeildar víta­spyrnur, rang­stöðu­mörk, brott­vís­anir eða óvænt úrslit voru ekki það sem þótti frétt­næm­ast í fyrstu umferð Evr­ópu­keppn­innar í fót­bolta. Nafn Danans Christian Eriksen var á allra vörum en skjót við­brögð björg­uðu lífi hans.

Christian Eriksen var borinn af velli eftir að hann hneig niður í leik Dana gegn Finnum um síðustu helgi.
Christian Eriksen var bor­inn af velli eftir að hann hneig niður í leik Dana gegn Finnum um síð­ustu helgi. Mynd: EPA

Tíð­inda­litlum fyrri hálf­leik milli Dana og Finna var um það bil að ljúka þegar dró til tíð­inda á þjóð­ar­leik­vangi Dana, Parken. Mið­vall­ar­spil­ar­inn Christian Eriksen hneig skyndi­lega niður, skammt frá hlið­ar­lín­unni. Millj­ónir sjón­varps­á­horf­enda, og 15 þús­und áhorf­endur á Parken, átt­uðu sig sam­stundis á því að eitt­hvað alvar­legt hafði gerst.

Læknar og hjúkr­un­ar­fólk kom á harða­hlaupum, með hjarta­stuð­tæki, og dönsku leik­menn­irnir mynd­uðu hring um Christian Eriksen sem var brátt bor­inn út af vell­inum og fluttur á sjúkra­hús. Upplýst var að hann væri lif­andi, frek­ari upp­lýs­ingar feng­ust ekki fyrr en síðar.

Eftir tæp­lega tveggja klukku­stunda hlé var leiknum haldið áfram. Sú ákvörðun var síðar harð­lega gagn­rýnd en leiknum lauk með sigri Finna 1-0.

Skjót viðbrögð skipta öllu

Myndir, og frá­sagnir af atvik­inu þegar Christian Eriksen hneig niður, fóru um allan heim. Síðan tóku við fréttir af heilsu­fari hans og hvað hefði eig­in­lega gerst. Lands­liðs­þjálf­ar­inn Kasper Hjulmand og Morten Boesen læknir lands­liðs­ins héldu frétta­manna­fund dag­inn eftir atvikið á vell­inum. Þjálf­ar­inn sagði þar að Christian Eriksen, sem er 29 ára, væri hress miðað við aðstæður, hann væri vel með á nót­unum og þakk­látur fyrir stuðn­ing og vel­vilja. Lækn­ir­inn greindi frá því að skjót við­brögð hefðu tví­mæla­laust bjargað lífi Christian Eriksen, sem hefði farið í hjarta­stopp, og nefndi sér­stak­lega hjarta­hnoð og hjarta­stuð­tæki.

Hjartastopp

Morten Boesen læknir útskýrði í stuttu máli hvað ger­ist þegar lík­am­inn fer í hjarta­stopp, sem hann sagði mjög alvar­legt ástand. Þegar hjartað hættir að slá, berst ekki súr­efni og nær­ing til líf­fær­anna. Ef slíkt ástand varir lengur en fjórar til sex mín­útur veldur það að lík­indum heilaskaða. Heilinn er flókið líf­færi og þarfn­ast stöðugs blóð­flæðis. Ástæður hjarta­stopps geta að sögn Morten Boesen verið margar, sumar tengdar lífs­stíl.

Þetta orð, lífs­stíll, vakti athygli Dana.

Danski lífsstíllinn ekki sem bestur

Árið 2018 fór fram viða­mikil rann­sókn á lífs­háttum Dana. Rúmlega 180 þús­und tóku þátt í rann­sókn­inni og nið­ur­stöður hennar voru ekki bein­línis upp­örvandi. Æ fleiri Danir eru of þungir, þeir borða ekki nægi­lega hollan mat, hreyfa sig of lítið, reykja of mikið og þung­lyndi og dep­urð fer vax­andi. Streita hrjáir um það bil 10% lands­manna.

Camilla Hersom for­maður Samtaka danskra sjúk­linga sagði nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar dap­ur­lega lesn­ingu. Sér­stak­lega væri sorg­legt að reyk­ingar ungs fólks skuli aukast, þrátt fyrir mik­inn áróður og fræðslu. Það eina jákvæða sem lesa má úr nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar er að áfeng­is­neysla Dana hefur minnkað, þrátt fyrir að hún sé mikil, miðað við nágranna­þjóð­irnar.

Þeim fjölgar sem vilja breyta

Nýlegar kann­anir sýna að þeim Dönum sem vilja breyta um lifn­að­ar­hætti, borða holl­ari mat og hreyfa sig meira, fer fjölg­andi. Hópurinn sem kærir sig koll­óttan um allt tal um holl­ustu og hreyf­ingu er þó enn stór og í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkrum dögum sagði hjarta­læknir að auka þurfi til muna fræðslu um nauð­syn þess að hugsa vel um lík­ama og sál. „Okkur miðar fram á við í þessum efnum, en þó allt of hægt.“

5 þúsund Danir fóru í hjartastopp árið 2020

Lækn­ir­inn benti á að hjarta- og æða­sjúk­dómar væru mjög algengir í Danmörku og í við­tal­inu kom fram að þeim sem fara í hjarta­stopp, utan sjúkra­húsa fjölgar ár frá ári, voru um það bil 5 þús­und í fyrra. Lækn­ir­inn áður­nefndi sagði að ekki væru allir jafn heppnir og knatt­spyrnu­mað­ur­inn Christian Eriksen. Þar hefði læknir ásamt hjúkr­un­ar­liði verið á staðnum og því getað brugð­ist hratt við. Lækn­ir­inn hefði einnig verið með hjarta­stuð­tæki, sem komið hefði sér vel. Og bætti því við að til­koma hjarta­stuð­tækj­anna hefði bjargað ótal manns­lífum, þau væru mjög ein­föld í notkun og krefð­ust engrar kunn­áttu „ættu að vera til á hverju heim­ili“.

Hjartahlaupararnir

Í maí árið 2019 birt­ist hér í Kjarn­anum pist­ill um óform­leg sam­tök sem Danir kalla hjarta­hlaupara (hjer­teløbere).

[links]Tryg trygg­inga­fé­lagið stofn­aði hjarta­hlaupara­sam­tökin haustið 2017. Hjarta­hlaupararnir voru fyrst í stað ein­göngu á suður- og vest­ur­hluta Sjálands en eru nú nán­ast um allt land. Tryg­Fonden, sjóður á vegum Tryg hefur gefið hund­ruð hjarta­stuð­tækja til stofn­ana í Danmörku.

Þeir sem ger­ast hjarta­hlauparar þurfa að vera fúsir til að hlaupa af stað þegar kall kemur, þeir fá enn fremur þjálfun í „hjálp í við­lögum“. Danir sýndu þessu mik­inn áhuga og í maí 2019 voru hjarta­hlaupararnir um það bil 56 þús­und. Tryg­Fonden hefur enn fremur unnið að því að skrá stað­setn­ingu hjarta­stuð­tækja og nú er stað­setn­ing um það bil 23 þús­und slíkra tækja að finna í gagna­grunni Tryg­Fonden. Auk þess­ara skráðu tækja eru þús­undir hjarta­stuð­tækja til í land­inu.

Hvernig virkar þetta?

Í áður­nefndri grein frá því í maí 2019 er birt til­búið dæmi um „hjarta­hlaupara­út­kall“. Þetta dæmi skýrir vel hvernig hjarta­hlaupara­kerfið virkar og er því end­ur­tekið hér.

Maður, staddur í afmæl­is­veislu í húsi í efri byggðum Kópavogs fær hjarta­á­fall. Strax er hringt í neyð­ar­núm­erið eftir sjúkra­bíl og um leið er stað­setn­ingin, heim­il­is­fang í efri byggðum Kópavogs, sjálf­krafa til­kynnt til Hjarta­hlaupara­nets­ins. Samtímis er sent út sms boð, gegnum næsta end­ur­varpsmastur, til fimmtán til tutt­ugu hjarta­hlaupara, sem staddir eru á svæð­inu, innan 1500 metra. Ef eng­inn þeirra svarar er svæðið stækkað í 3 kíló­metra. Pípið í sím­anum er öðru­vísi en venju­legt sms merki og hjarta­hlaupararnir rjúka upp til handa og fóta til aðstoðar mann­inum með hjarta­á­fallið en heim­il­is­fangið fá þeir líka sent með sms skila­boð­unum. Jafn­framt fá hjarta­hlaupararnir boð um hvar næsta hjarta­stuð­tæki sé að finna. Hjarta­hlaup­ari sem staddur er í nágrenni tæk­is­ins grípur það með sér og kemur svo til aðstoðar.

Reynslan frá Danmörku sýnir að venju­lega eru fimm til tíu hjarta­hlauparar sem bregð­ast við.

Í stuttu máli sagt hefur þetta virkað mjög vel. Í nær helm­ingi til­vika hafa hjarta­hlaupararnir verið komnir tals­vert á undan sjúkra­bílnum og það hefur skipt sköpum.

Fjöldi hjartahlaupara hefur tvöfaldast

Hér að framan var nefnt að árið 2019 voru 56 þús­und skráðir hjarta­hlauparar í Danmörku. Í grein sem birt­ist fyrir nokkrum dögum á vef Danska útvarps­ins, DR, kom fram að nú eru skráðir hjarta­hlauparar tæp­lega 114 þús­und og fjölgar dag frá degi. Tals­maður Tryg trygg­inga­fé­lags­ins sagði í við­tali við danska útvarpið að sím­inn stoppi ekki allan dag­inn. Fólk vilji skrá sig á nám­skeið um hjálp í við­lögum og fá upp­lýs­ingar um hjarta­hlaupara­sam­tökin. Önnur trygg­inga­fé­lög og fyr­ir­tæki sem ann­ast sjúkra­flutn­inga segja sömu sögu.

Eins og nefnt var í upp­hafi voru það skjót, og rétt, við­brögð sem björg­uðu lífi Christian Eriksen. Nýjustu fréttir af honum eru þær að hann sé við góða heilsu og græddur hafi verið í hann svo­nefndur bjarg­ráður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár