Hjartahlaupararnir

Fimmtíu þús­und Danir eru dag og nótt fúsir að hlaupa af stað og aðstoða fólk sem fengið hefur hjarta­á­fall. Slík aðstoð getur skipt sköpum meðan beðið er eftir sjúkra­bíl og lækni.

Frá síð­ustu alda­mótum, einkum þó á síð­asta ára­tug, hefur sjúkra­húsum í Danmörku fækkað mikið. Árið 2007 voru sam­tals 76 sjúkra­hús í land­inu öllu en í dag eru þau 56. Jafn­framt eru þau sjúkra­hús sem hafa sól­ar­hrings neyð­ar­vakt nú 21 tals­ins, en árið 2007 voru þau 40.

Eins og ofan­greindar tölur bera með sér hefur sjúkra­hús­þjón­usta í Danmörku breyst mikið. Sjúkra­hús­unum hefur fækkað en þau sem eftir standa eru mun öfl­ugri en áður og betur í stakk búin til að takast á við sífellt flókn­ari, sér­hæfð­ari og erf­ið­ari verk­efni.

Ákvarð­anir um fækkun sjúkra­húsa hafa verið mjög umdeildar. Enginn vill missa sjúkra­húsið úr sínu nágrenni en hin öra tækni­þróun, með auknum kostn­aði (meðal ann­ars vegna hærri með­al­ald­urs þegn­anna) hefur leitt til þess­arar breyt­ingar. Breyt­ingin hefur í för með sér að nú er, fyrir marga, mun lengri leið á sjúkra­húsið. Þetta á einkum við um dreif­býlið.

Lengri bið eftir sjúkrabílnum

Í Danmörku er rekstur sjúkra­bíla í höndum einka­fyr­ir­tækja, rekst­ur­inn jafnan boð­inn út til nokk­urra ára í senn. Sama gildir um sjúkra­þyrlur. Fyr­ir­tækin sem ann­ast rekst­ur­inn reyna að gæta ítr­ustu hag­kvæmni og á síð­ustu árum hefur „útgerð­ar­stöðv­unum“ ef svo má að orði kom­ast fækkað nokkuð. Það getur þýtt lengri bið eftir sjúkra­bíl, eða þyrlu og sú bið getur skipt sköpum. Ekki síst þegar um er að ræða hjarta­á­fall.

Sjúkra­flutn­inga­fyr­ir­tækin full­yrða að fækkun stöðv­anna hafi lítil sem engin áhrif, sam­göngur verði sífellt betri og bíl­arnir því fljót­ari í förum. Skýrslur sýna að á und­an­förnum árum hefur tím­inn sem sjúkra­bíll­inn er á leið á áfanga­stað víða lengst, en hvergi styst. Aðal­á­stæður þess að ferða­tími sjúkra­bíl­anna hefur lengst eru tvær: síaukin umferð á veg­unum og lengri leið á næsta sjúkra­hús. Síð­ar­nefnda ástæðan gildir líka um þyrlurnar.

Hjartastuðtækin

Flestir kann­ast við hjarta­stuð­tækin svo­nefndu. Þau voru fundin upp fyrir nokkrum ára­tugum, áður var hjarta­hnoð og blást­urs­að­ferð helstu aðferðir til end­ur­lífg­unar. Fyrst í stað var notkun hjarta­stuð­tækj­anna bundin við sjúkra­hús og lækna­stofur. Um síð­ustu alda­mót komu á mark­að­inn hjarta­stuð­tæki sem voru mun ódýr­ari og hand­hæg­ari en þau sem áður höfðu þekkst. Og það sem meira var, þessi tæki voru svo ein­föld í notkun að þau kröfð­ust engrar kunn­áttu not­and­ans. Í dag er þessi tæki mjög víða að finna, á heim­ilum og vinnu­stöðum. Í Danmörku eru nú um það bil 22 þús­und hjarta­stuð­tæki og fer ört fjölg­andi. En þótt tækin séu til staðar er þörfin fyrir þá sem kunna „hjálp í við­lögum“ áfram mikil. Um fjögur þús­und Danir fá árlega hjarta­stopp, utan sjúkra­húsa.

Hjartahlaupararnir og hjartastuðtækin

Tryg er nafnið á einu stærsta trygg­inga­fé­lagi Dan­merkur. Í tengslum við félagið er sjóður, Tryg­Fonden. Þessi sjóður sinnir alls kyns verk­efnum sem lúta, á einn eða annan hátt, að öryggi og vel­ferð borg­ar­anna. Sjóð­ur­inn hefur gefið hund­ruð hjarta­stuð­tækja til stofn­ana í Danmörku, þar á meðal skóla og hjúkr­un­ar­heim­ila.

Þann 1. sept­em­ber árið 2017 voru stofnuð, undir stjórn Tryg­Fonden sam­tök sem nefn­ast Hjer­teløbere, Hjarta­hlauparar. Fyrst í stað var starf­semin bundin við suður- og vest­ur­hluta Sjálands en hefur síðan breiðst út til ann­arra lands­hluta. Þeir sem vilja ganga til liðs við sam­tökin þurfa að vera fúsir til að hlaupa af stað þegar kall kemur og fá enn­fremur þjálfun í ,,hjálp í við­lögum“. Ætlunin var að koma upp þéttu neti hjarta­hlaupara um land allt. Danir sýndu þessu mik­inn áhuga og nú eru Hjarta­hlaupararnir um það bil 56 þús­und, og fer fjölg­andi. Tryg­Fonden hefur enn­fremur unnið að skrán­ingu hjarta­stuð­tækja í því skyni að vita nákvæm­lega hvar slík tæki er að finna.

Hvernig virkar þetta?

Til að útskýra hvernig hjarta­hlaupara­kerfið virkar er kannski nær­tæk­ast að taka dæmi, yfir­fært á Ísland.

Maður, staddur í afmæl­is­veislu í húsi í efri byggðum Kópavogs fær hjarta­á­fall. Strax er hringt í neyð­ar­núm­erið eftir sjúkra­bíl og um leið er stað­setn­ingin, í efri byggðum Kópavogs, sjálf­krafa til­kynnt til Hjarta­hlaupara­nets­ins. Samtímis er sent út sms boð, gegnum næsta end­ur­varpsmastur, til fimmtán til tutt­ugu hjarta­hlaupara, sem staddir eru á svæð­inu, innan 1500 metra. Ef eng­inn þeirra svarar er svæðið stækkað í 3 kíló­metra. Pípið í sím­anum er öðru­vísi en venju­legt sms merki og hjarta­hlaupararnir rjúka upp til handa og fóta til aðstoðar mann­inum með hjarta­á­fallið en heim­il­is­fangið fá þeir líka sent með sms skila­boð­unum. Jafn­framt fá hjarta­hlaupararnir boð um hvar næsta hjarta­stuð­tæki sé að finna. Hjarta­hlaup­ari sem staddur er í nágrenni tæk­is­ins grípur það með sér og kemur svo til aðstoðar. Reynslan sýnir að venju­lega eru fimm til tíu hjarta­hlauparar sem bregð­ast við.

Í stuttu máli sagt hefur þetta virkað mjög vel. Í nær helm­ingi til­vika hafa hjarta­hlaupararnir verið komnir tals­vert á undan sjúkra­bílnum og það hefur skipt sköpum.

Enn í mótun

Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði tals­maður Tryg­Fonden að hjarta­hlaupara­kerfið væri enn í mótun. Hann kvaðst þess full­viss að hjarta­h­laup­urum ætti eftir að fjölga til muna á næstu árum. Aðsókn að nám­skeiðum fyrir hjarta­hlaupara væri mikil sem væri jákvætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár