Vill að farið verði í heildarendurskoðun á áfengislögum

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ist vera hlynntur frelsi með ábyrgð og telur mik­il­vægt að farið verði í heild­ar­end­ur­skoðun á áfeng­is­lögum með það að mark­miði að taka til­lit til sam­keppn­is­sjón­ar­miða en einnig þeirra sjón­ar­miða er snúa að for­vörnum.

Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokksins.
Jóhann Friðrik Frið­riks­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Friðrik Frið­riks­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins gerði áfeng­is­lögin að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann hóf ræðu sína á að segja að eitt­hvert vin­sælasta við­fangs­efni á þing­inu ár eftir ár sneri að áfeng­is­lög­gjöf­inni í land­inu.

„Enginn þarf að velkj­ast í vafa um þá stað­reynd að áfengi er alls ekki eins og hver önnur vara. Heilsu­fars­legur og sam­fé­lags­legur skaði af áfeng­is­neyslu er gríð­ar­legur og veldur umtals­vert meiri skaða en öll önnur vímu­efni, enda eina lög­lega vímu­efnið á mark­aði,“ sagði hann.

Þá benti þing­mað­ur­inn á að sem betur fer not­uðu flestir áfengi í hófi en rann­sóknir sýndu að hömlur á aðgengi skil­uðu árangri í þeirri við­leitni stjórn­valda að lág­marka óæski­leg áhrif á lýð­heilsu í land­inu.

„Sem dæmi um frum­vörp sem snúa að breyt­ingum á áfeng­is­lögum og koma upp í hug­ann má nefna frum­varp um aðkomu sveit­ar­fé­laga að stað­ar­vali áfeng­is­versl­ana, sala áfengis á fram­leiðslu­stað, frum­varp um sölu áfengis á sunnu­dögum og leyfi til sölu áfengis í íslenskum net­versl­unum. Mér að vit­andi liggur ekki lýð­heilsu­mat til grund­vallar þessum frum­vörpum. Myndi það vera veru­lega til bóta og mun ég því leggja slíkt til,“ sagði hann.

Margt breyst frá árinu 1998

Jóhann Friðrik sagði jafn­framt að hann væri sjálfur hlynntur frelsi með ábyrgð og vildi því taka fram að í áfeng­is­lögum segði að til­gangur lag­anna væri að vinna gegn mis­notkun áfengis.

„Lögin eru frá 1998, en frá þeim tíma hefur margt breyst, sér í lagi á sviði for­varna og rann­sókna. Ég tel því mik­il­vægt að farið verði í heild­ar­end­ur­skoðun á áfeng­is­lögum með það að mark­miði að taka til­lit til sam­keppn­is­sjón­ar­miða, mis­ræmis á milli inn­lendra og erlendra aðila, en fyrst og fremst þeirra sjón­ar­miða er snúa að for­vörnum, áhrifum áfeng­is­neyslu á börn og ung­linga og lýð­heilsu í land­inu,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár