Þeim sem æfa knattspyrnu á Íslandi fjölgaði um 50 prósent á áratug

Flestir lands­menn sem stunda íþróttir velja knatt­spyrnu og iðk­endum hennar hefur fjölgað um næstum tíu þús­und á ára­tug. Iðkendum sem æfa hand­bolta fjölgar hægt og þeim sem leggja stund á frjálsar íþróttir hefur fækkað frá 2009.

Góður árangur íslenskra knattspyrnulandsliða undanfarin ár hefur ugglaust skipt miklu máli í þeirri þróun sem hefur orðið á fjölda iðkenda síðastliðin ár.
Góður árangur íslenskra knatt­spyrnu­lands­liða und­an­farin ár hefur ugg­laust skipt miklu máli í þeirri þróun sem hefur orðið á fjölda iðk­enda síð­ast­liðin ár. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Knatt­spyrna er sú íþrótt sem flestir lands­menn kjósa að stunda og iðk­endum hennar hefur fjölgað um næstum tíu þús­und á einum ára­tug, eða um nálægt 50 pró­sent. Þeim sem velja að æfa körfu­bolta hefur fjölgað um 25 pró­sent á sama tíma­bili en hlut­falls­leg fjölgun hjá þeim sem kjósa að æfa hand­bolta var tíu pró­sent.

Þetta má lesa úr töl­fræði sem unnin er úr gögnum sem íþrótta- og ung­menna­fé­lög innan Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) skil­uðu raf­rænt á árinu 2020 í gegnum Felix - félaga­kerfi ÍSÍ og UMFÍ. Um er að ræða gögn um iðkun íþrótta árið 2019 og voru þau sótt í gagna­grunn Felix í sept­em­ber 2020.

Tæplega 50 þúsund nýir iðkendur frá 2009

Árið 2009 voru iðk­endur þeirra íþrótta­greina sem skráðar eru innan Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands alls 112.366 tals­ins. Næsta ára­tug­inn, til loka árs 2019, fjölg­aði iðk­endum í 159.505 tals­ins, eða um 47.139.

Knatt­spyrna er sú íþrótt sem flestir stunda, eða alls 29.998 iðk­endur í lok árs 2019. Þeim hafði fjölgað um 9.915 á tíu árum sem þýðir að 21 pró­sent allra nýrra iðk­enda völdu knatt­spyrnu til að stunda. Þau félög sem bjóða upp á æfingar í knatt­spyrnu voru 128 tals­ins árið 2019.

[adspot]Hlut­falls­lega hefur fjöldi iðk­enda knatt­spyrnu auk­ist um 49,3 pró­sent á tíu ára tíma­bili.

Knatt­spyrna ber auk þess höfuð og herðar yfir aðrar íþrótta­greinar þegar kemur að vin­sældum hjá yngri iðk­endum. Af iðk­endum hennar voru 21.530 17 ára eða yngri. Rúmlega 65 pró­sent yngri iðk­enda eru karl­kyns en um 35 pró­sent kven­kyns. Kven­kynsiðk­endum hefur fjölgað meira í yngri flokkum knatt­spyrnu­fé­laga lands­ins en karl­kyns síð­ast­lið­inn ára­tug.

Fjórðungsaukning í körfuboltanum

Sú íþrótt sem er að öllu leyti hóp­í­þrótt sem komst næst knatt­spyrnu í fjölda iðk­enda í lok árs 2019 var körfu­bolti. Hann stund­uðu 8.313 á þeim tíma. Iðkendum hefur fjölgað um alls 1.684 á ára­tug, eða um 25,4 pró­sent. Af þeim sem æfðu körfu­bolta árið 2019 voru 5.744 undir 18 ára aldri, eða 69 pró­sent allra iðk­enda. Alls bjóða 60 félög upp á æfingar í körfu­bolta.

Þjóðar­í­þróttin hand­bolti kemur þar næst. Í lok árs 2019 æfðu 7.685 manns hand­bolta. Þeim fjölg­aði ein­ungis um 0,1 pró­sent milli áranna 2018 og 2019 og 716 á ára­tug. Það þýðir að hlut­falls­leg fjölgun iðk­enda í hand­bolta frá 2009 og til loka árs 2019 var 10,2 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði iðk­endum í íþróttum alls um 42 pró­sent.

Þeim sem æfa frjálsar fækkar

Næst flestir iðk­endur hér­lendis eru í golfi. Þeir voru alls 21.215 í lok árs 2019 og hafði fjölgað um 5.444 á ára­tug, eða 34,5 pró­sent. Öfugt við vin­sæl­ustu íþrótt­ina, knatt­spyrnu, þá eru golfar­arnir lang­flestir yfir 18 ára aldri. Alls eru 89 pró­sent þeirra full­orðnir.

Fjöldi þeirra sem æfa fim­leika hefur næstum tvö­fald­ast á ára­tug. Þeir voru 7.495 árið 2009 en 14.141 tíu árum síðar.

Þeir sem stunda hesta­í­þróttir hefur fjölgað um rúm­lega þús­und á ára­tugnum milli 2009 og 2019 og iðk­endur í sundi fóru úr 2,714 í 3.951. Fjöldi iðk­enda í bad­minton stóð nán­ast í stað á umræddum ára­tug. Þeim fjölg­aði 102 í 5.011, eða um tvö pró­sent.

Af þeim íþróttum sem eru með yfir eitt þús­und iðk­endur eru frjálsar íþróttir sú sem er að glíma við mesta fækkun iðk­enda. Árið 2009 voru þeir 5.348 og fjöld­inn var að vaxa ár frá ári. Árið 2010 höfðu til að mynda 302 nýir iðk­endur bæst við frá árinu á undan.

Í árs­lok voru iðk­endur frjálsra íþrótta sam­kvæmt gagna­grunni ÍSÍ og UMFÍ, hins vegar 4.397. Þeim hafði þá fækkað um 18 pró­sent frá 2009 og 22 pró­sent frá 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár