Brugghúsafrumvarp Áslaugar Örnu vekur litla kátínu hjá Landlæknisembættinu og ÁTVR

Embætti land­læknis telur „góða sátt“ um núver­andi fyr­ir­komu­lag áfeng­is­sölu, en lítil merki eru um það í þeim fjöl­mörgu umsögnum sem borist hafa Alþingi und­an­farna daga vegna frum­varps dóms­mála­ráð­herra um sölu bjórs beint frá brugg­húsum.

Skiptar skoð­anir eru uppi vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á áfeng­is­lögum, sem ætlað er að styðja við smærri brugg­hús á Íslandi, en með frum­varpi Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra er lagt til að smærri brugg­húsum verði gert kleift að selja áfengt öl í smá­sölu á fram­leiðslu­stað. Umsagnir hafa hrann­ast inn til Alþingis síð­ustu daga.

Ekki þarf að koma á óvart að fjöldi lít­illa brugg­húsa hefur lýst yfir stuðn­ingi við málið, en sam­kvæmt frum­varp­inu yrði brugg­húsum sem fram­leiða innan við 500 þús­und lítra af öli á ári leyft að selja fram­leiðslu sína, þó ekki sterkara öl en 12 pró­sent, beint frá sínum fram­leiðslu­stað.

„Sala beint frá fram­leiðslu­stað mun styðja við litlu brugg­húsin í land­inu til að vaxa og dafna,“ segir í umsögn stjórnar Samtaka íslenskra hand­verks­brugg­húsa, sem full­yrða að frum­varpið muni ekki auka aðgengi að áfengi að neinu ráði.

Landlæknisembættið telur góða sátt ríkja um núverandi fyrirkomulag

Um það er þó ekki ein­hugur. Embætti land­læknis skil­aði inn umsögn í vik­unni þar sem segir að allar breyt­ingar sem eigi að gera á áfeng­is­sölu hér­lendis kalli á heild­ræna nálgun. Embættið leggur til að breyt­ingar á borð við þær sem boð­aðar eru í frum­varp­inu verði ekki inn­leiddar nema sem hluti af opin­berri heild­rænni stefnu um mála­flokk­inn og bent er á að opin­ber stefna í áfengis- og vímu­vörnum rann út í fyrra.

Land­lækn­is­emb­ættið telur einnig að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar, sem auki aðgengi að áfengi, geti leitt til auk­innar kröfu um breyt­ingar eða til­slak­anir „á því ann­ars góða fyr­ir­komu­lagi sem um ríkir góð sátt“ og að það geti leitt til að „aðgengi að áfengi verði aukið enn frekar með til­slök­unum á áfeng­is­stefn­unni.“

Umdeil­an­legt er hversu góð sátt er um núver­andi fyr­ir­komu­lag áfeng­is­sölu á Íslandi, en á und­an­förnum árum hefur umræða um hvort leyfa eigi sölu víns í mat­vöru­versl­unum reglu­lega skotið upp koll­inum. Í könnun Maskínu frá árinu 2019 voru fleiri á því að heim­ila ætti sölu létt­víns og bjórs í mat­vöru­versl­unum en voru því and­vígir, en mikil and­staða er í sam­fé­lag­inu við að sterkt áfengi verði til sölu í mat­vöru­búðum.

Niðurstöður úr könnun Maskínu frá 2019. Þau prósent sem upp á vantar í hverjum flokki tóku ekki afstöðu til málsins.
Nið­ur­stöður úr könnun Maskínu frá 2019. Þau pró­sent sem upp á vantar í hverjum flokki tóku ekki afstöðu til máls­ins.

Embættið leggur fram nokkrar spurn­ingar og vanga­veltur sem hjá því vökn­uðu við lestur frum­varps­ins, m.a. hvaða rök liggi fyrir því að hámarks­á­feng­is­magn í ölinu sem brugg­hús megi selja beint sé 12 pró­sent og hvort lækka mætti þetta hámark. Einnig spyr emb­ættið að því hvernig tryggt verði að haldið verði utan um sölu­tölur og hvernig áhrif verði metin, til dæmis með til­liti skað­legra áhrifa og auk­innar sölu.

Land­lækn­is­emb­ættið telur einnig að æski­legt væri að setja tak­mark­anir á hæfi­legt magn sem neyt­andi mætti kaupa í hvert skipti. Það má því segja að emb­ættið vilji fara Fram­sókn­ar­leið­ina, en þrír þing­menn Fram­sóknar lögðu fram frum­varp sem er að ýmsu leyti keim­líkt frum­varpi Áslaugar Örnu, nema hvað neyt­anda yrði ein­ungis heim­ilt að kaupa eina kippu, sex bjóra, í einu.

ÁTVR telur að 500 þúsund lítra þakið sé allt of hátt

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins, sem fer einka­leyfi á smá­sölu áfengis á Íslandi, leggst gegn ýmsum þáttum frum­varps­ins í 23 blað­síðna langri umsögn um málið, en þó er und­ir­strikað í nið­ur­lagi að umsögnin feli ekki í sér „tæm­andi grein­ingu á afleið­ingum þess“ að frum­varpið nái fram að ganga.

ÁTVR telur til­lög­una allt of víð­tæka og fer yfir það í umsögn sinni að frum­varpið stand­ist að lík­indum ekki kröfur Evr­ópu­réttar. „Allar líkur væru á að fyr­ir­komu­lagið teld­ist magn­tak­mörkun á inn­flutn­ingi í skiln­ingi 11. gr. EES-samn­ings­ins sem varla væri rétt­lætt á grund­velli 13. gr. hans. Eins gæti verið um brot á 16. gr. samn­ings­ins að ræða,“ segir í nið­ur­lagi umsagnar ÁTVR.

Rík­is­stofn­unin telur að 500.000 lítra fram­leiðslu­há­markið, sem úti­lokar sam­kvæmt Samtökum íslenskra hand­verks­brugg­húsa ekk­ert brugg­hús nema Kalda á Árskógs­strönd frá því að selja vín sitt beint frá brugg­húsi, nái frum­varpið fram að ganga, sé allt of hátt.

ÁTVR telur að frumvarpið í núverandi mynd gæti brotið gegn EES-samningnum.
ÁTVR telur að frum­varpið í núver­andi mynd gæti brotið gegn EES-samn­ingnum.

ÁTVR bendir á að þessi tala, sem notuð er til að skil­greina lítil brugg­hús, sé tekin beint upp úr finnsku áfeng­is­slög­gjöf­inni. Finnland sé hins vegar mun stærri mark­aður.

„Ef stærð brugg­húsa er sett í sam­hengi við fjölda lands­manna jafn­gildir 500.000 lítra við­mið Finna, sem eru ca. 5.550.000 tals­ins, rétt ríf­lega 31.000 lítra árs­fram­leiðslu hér á landi, miðað við að fjöldi Íslend­inga sé ca. 345.000. Til þess að setja fram­leiðslu­magnið í sam­hengi við stærð bjór­mark­að­ar­ins hér á landi skal jafn­framt bent á að á árinu 2020 nam heild­ar­sala á öli að fram­an­greindum styrk­leika 20.581.691 lítrum í öllum vín­búðum ÁTVR. Eftir því sem fram kemur í grein­ar­gerð með fyr­ir­liggj­andi frum­varpi eru á þriðja tug brugg­húsa aðilar að Samtökum íslenskra hand­verks­bruggs­húsa. Ef tutt­ugu þeirra myndu á einu ári selja allt að 500.000 lítra eigin fram­leiðslu í smá­sölu á grund­velli und­an­þágu­heim­ild­ar­innar næmi heild­ar­sala þeirra allt að 10.000.000 áfeng­is­lítrum, sem sam­svarar hátt í helm­ingi allrar bjór­sölu ÁTVR síð­ast­liðið ár. Því getur varla talist um þrönga und­an­þágu frá rík­is­einka­söl­unni að ræða,“ segir í umsögn ÁTVR.

Krabbameinsfélög leggjast ákveðið gegn

Fjöl­margar umsagnir til við­bótar hafa borist, ýmist með eða á móti frum­varp­inu. Krabba­meins­fé­lag Íslands og Krabba­meins­fé­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins leggj­ast gegn sam­þykkt þess og benda á að áfengi sé engin venju­leg vara.

„Ákvarð­anir stjórn­valda hljóta alltaf að byggja á bestu þekk­ingu. Augljóst er að ekki fer saman að Alþingi leyfi frjáls­ari verslun með áfengi, sem getur meðal ann­ars fjölgað dauðs­föllum, sjúk­dómum og hækkað kostnað í heil­brigð­is­kerf­inu, á sama tíma og vinna á eftir nýrri íslenskri krabba­meins­á­ætlun og lýð­heilsu­á­ætl­unum með for­varnir að leið­ar­ljósi,“ segir Krabba­meins­fé­lag Íslands í sinni umsögn.

Spyrja hvort kynna þurfi internetið fyrir stjórnvöldum

Samtök ferða­þjón­ust­unnar (SAF) telja frum­varpið til bóta, en þó ein­ungis „hænu­skref“ í átt að betri fram­kvæmd áfeng­is­sölu á Íslandi. Samtökin eru ósátt með þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið frá því að frum­varps­drög voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda síð­asta haust. Þá stóð til að gera heim­ila verslun með áfengi í inn­lendum vef­versl­unum, en frá því var fallið í end­an­legu frum­varpi.

Í umsögn SAF er bent á að í dag er heim­ilt að kaupa áfengi í gegnum erlendar vef­versl­anir og í gegnum vef­síðu Vín­búð­ar­innar. Það þarf hins vegar að sækja áfengið sem er verslað í gegnum vef­verslun Vín­búð­ar­innar. Hins vegar er áfengið sem er pantað í gegnum erlendar vef­versl­anir afhent heim að dyrum íslenskra heim­ila.

Smá­brugg­húsið Steðji í Flókadal í Borg­ar­firði opn­aði síð­asta haust sína eigin net­verslun og hýsti hana erlendis. Það end­aði með lög­reglu­máli, sem ekki hefur verið til lykta leitt, sam­kvæmt því sem Kjarninn kemst næst. „Við telj­um regl­urn­ar okk­ar meg­in,“ sagði Dag­bjart­ur Árel­í­us­son hjá Steðja í sam­tali við Morg­un­blaðið í októ­ber í fyrra.

„Það að vera and­víg frum­varp­inu sem var sett inná sam­ráðs­gátt lýsir hvað stjórn­völd geta verið svifa­sein að átta sig á nútím­anum og stöð­unni eins og hún er. Stundum veltir maður fyrir sér hvort það þurfi að kynna stjórn­völdum þá þróun sem ver­ald­ar­vef­ur­inn hefur borið með sér hvað varðar fram­boð og sölu á vöru og þjón­ustu,“ segja full­trúar Samtaka ferða­þjón­ust­unnar í umsögn sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áfengisneysla

Mest lesið undanfarið ár