Nikótínpúðaframleiðandi segir bann við auglýsingum nikótínvara geta skert lýðheilsu

British American Tobacco leggst gegn aug­lýs­inga­banni og banni á sýni­leika á nikótín­vörum sem lagt er til í nýju laga­breyt­inga­frum­varpi. Þriðj­ungur fram­halds­skóla­nema notar nikótín­púða sam­kvæmt umsögn Embættis land­læknis við frum­varpið.

Sígar­ettu- og nikótín­vöru­fram­leið­and­inn British American Tobacco (BAT) leggst gegn því að bannað verði að aug­lýsa nikótín­vörur en það er meðal þess sem er lagt til í nýju stjórn­ar­frum­varpi um breyt­ingu á lögum um nikótín­vörur. Í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins við frum­varpið er tekið fram að heilt yfir fagni það fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á lög­unum en það leggur þó til ákveðnar breyt­ingar.

„Það frum­varp sem nú liggur fyrir leggur ekki stein í götu inn­flutn­ings og sölu nikótín­púða og felur í sér við­ur­kenn­ingu á því að nikótín­vörur eru hættu­minni en tóbaks­vörur og gegna mik­il­vægu hlut­verki í tóbaks­for­vörnum,“ segir meðal ann­ars í umsögn BAT en það telur mik­il­vægt að um inn­flutn­ing og sölu nikótín­púða gildi skýrar reglur.

Umsögn BAT er í meg­in­dráttum jákvæð í garð frum­varps­ins en félagið gerir á stöku stað athuga­semdir við frum­varpið og leggur til ákveðnar breyt­ingar. Fyr­ir­tækið leggst aftur á móti gegn aug­lýs­inga­banni og banni við sýni­leika nikótín­vara eins og lagt er til í frum­varp­inu.

„Fyr­ir­tækið telur að slík ákvæði séu til þess fallin að skerða lýð­heilsu frekar en að efla hana. Nikótín­púðar eru ekki tóbaks­vörur, inni­halda ekki brenn­an­legt tóbak né annað tóbak og losa því umtals­vert minna magn eit­ur­efna en hefð­bundnar tóbaks­vörur eða munn­tó­baks­vörur,“ segir í umsögn­inni.

Segja nikótínpúða geta orðið „lýðheilsubót“

Í umsögn­inni er notkun nikótín­vara sem ekki inni­heldur tóbak borin saman við reyk­ingar sem og reyk­laust tóbak og er því haldið á lofti að notkun nikótín­vara sé mun skað­laus­ari en tóbaks­notkun.

Til að mynda segir í umsögn­inni: „Það er almennt við­ur­kennt af sér­fræð­ingum og lýð­heilsu­yf­ir­völdum að hægt sé að bjarga mörgum manns­lífum með því að draga úr tíðni reyk­inga hafi reyk­inga­menn val um að nota áhættu­minni vörur sem kunna að vera á mark­aði. Kon­ung­legi breski lækna­há­skól­inn hefur bent á að „þar sem mestur skaði af völdum reyk­inga stafar ekki af nikó­tíni heldur frá öðrum hlutum tóbaks­reyks væri hægt að bæta heilsu og auka lífslíkur reyk­inga­manna mikið með því að hvetja sem flesta til að skipta yfir í reyklausan nikótín­gjafa".“

Að mati fyr­ir­tæk­is­ins væri því óráð að fella vörur á borð við nikótín­vörur undir sam­bæri­legan lag­ara­mma og gert er með brenn­an­legar tóbaks­vörur. „Að tak­marka sýni­leika þeirra í smá­sölu og setja um þær sömu reglur og hefð­bundnar sígar­ettur gerir reyk­inga­fólki erf­ið­ara fyrir að vita um fram­boð þeirra, letur það til að skipta og getur valdið mis­skiln­ingi varð­andi hugs­an­legan lýð­heilsu­á­vinn­ing af þeim miðað við sígar­ettur.“

Fyr­ir­tækið segir þar að auki að ábyrg mark­aðs­setn­ing sé nauð­syn­leg til þess að nikótín­vörur „geti orðið sú lýð­heilsu­bót sem þörf kann að vera á.“ Því vill fyr­ir­tækið að gripið sé til hóf­stillt­ari ráð­staf­ana, til dæmis að banna aug­lýs­ingar sem bein­ast að ung­mennum.

Notkun nikótínpúða meiri meðal ungs fólks en eldri

Meðal þeirra umsagn­ar­að­ila sem engar athuga­semdir gera við frum­varpið og styðja fram­gang þess eru Embætti land­læknis og Krabba­meins­fé­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í umsögn Krabba­meins­fé­lags­ins hvetur félagið ráð­herra og alþing­is­menn til enn frek­ari aðgerða í þágu tóbaks- og nikótín­varna á Íslandi með það að mark­miði að koma í veg fyrir að börn og ung­menni ánetj­ist nikó­tíni.

Í umsögn Embættis land­læknis er að sama skapi sagt óæski­legt að ungt fólk byrji að nota nikótín­vörur og verði háð efn­inu. Mikill munur er á notkun nikótín­púða eftir aldri líkt og kemur fram í umsögn emb­ætt­is­ins. Þar segir að 10 pró­sent ein­stak­linga 18 ára og eldri noti nikótín­púða, þar af sjö pró­sent dag­lega. Hins vegar nota 28 pró­sent ein­stak­linga á aldr­inum 18 til 24 ára nikótín­púða. Þá segir í umsögn­inni að um þriðj­ungur nem­enda í fram­halds­skólum noti nikótín­púða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár