Embætti landlæknis segir nei við heimabruggi

Í frum­varpi um breyt­ingu á áfeng­is­lögum er lagt til að bruggun áfengis til einka­neyslu með gerjun verði heim­iluð. Ekki verður hægt að fylgj­ast með heild­ar­drykkju þjóð­ar­innar nái frum­varpið fram að ganga, segir í umsögn Embættis land­læknis um frum­varpið.

Bjórbruggun til einkaneyslu er bönnuð hér á landi.
Bjór­bruggun til einka­neyslu er bönnuð hér á landi. Mynd: Pexels

Með því að heim­ila heima­bruggun verður óger­legt að fylgj­ast með heild­ar­drykkju þjóð­ar­innar að því er fram kemur í umsögn Embættis land­læknis við laga­frum­varp um breyt­ingu á áfeng­is­lögum sem myndi heim­ila heima­bruggun. Embættið er mót­fallið því að bann við heima­bruggun verði aflétt og leggst gegn breyt­ingum á áfeng­is­lögum. Undir umsögn­ina skrifa þeir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoð­ar­maður land­læknis, og Rafn Magnús Jónsson verk­efn­is­stjóri á sviði lýð­heilsu.

Í umsögn emb­ætt­is­ins segir að það hafi ítrekað und­an­farin ár varað við og lagst gegn breyt­ingum á fyr­ir­komu­lagi á sölu áfengis á Íslandi. „Tak­markað aðgengi að áfengi, sem meðal ann­ars felur í sér tak­markað aðgengi með einka­sölu rík­is­ins á áfengi, er áhrifa­rík leið til að draga úr skað­legum áhrifum vegna notk­unar áfengis. Ekki þarf að efast um skað­leg áhrif áfengis á ein­stak­linga og sam­fé­lög en á hverju ári lát­ast rúm­lega þrjár millj­ónir manna í heim­inum af áfeng­is­tengdum orsökum,“ segir þar enn fremur.

Eitt af mark­miðum Heims­á­ætl­unar Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar sé að draga úr heild­ar­á­feng­is­notkun þjóða en með breyt­ingu á áfeng­is­lögum verður ekki hægt að fylgj­ast með heild­ar­drykkju þjóð­ar­innar.

Frumvarpið flutt í fimmta sinn

Breyt­ingin í laga­frum­varp­inu sem um ræðir er fólgin í því að bruggun bjórs til einka­neyslu verði heim­iluð, það er að segja að bruggun áfengis með gerjun verði leyfð. Bruggun áfengis til einka­neyslu með eim­ingu yrði því enn bönnuð. Þetta er í fimmta sinn sem frum­varpið er flutt en í upp­haf­legri mynd þess var ekki gerður grein­ar­munur á fram­leiðslu áfengis með gerjun og með eim­ingu. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er áfeng­is­neysla sögð rót­gró­inn hluti af íslenskri menn­ingu. Fram­leiðsla þess, sala og neysla hafi verið háð miklum tak­mörk­unum vegna þeirra skað­legu áhrifa sem áfeng­is­neysla veldur bæði þeim sem neyta og sam­fé­lag­inu í heild. Með frum­varp­inu sé þó hvorki lögð til rýmkun á heim­ildum til dreif­ingar né breyt­ing á sölu­fyr­ir­komu­lagi.

Þar segir einnig að á síð­ustu árum hafi margar nýjar teg­undir íslensks bjórs rutt sér til rúms á síð­ustu árum og að for­vitni ferða­manna á íslenskum bjór hafi auk­ist sam­hliða þeirri þróun. Sú þróun megi ekki byggja á lög­broti, eða eins og segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins: „Það skýtur skökku við að vaxt­ar­broddur íslenskrar bjór­menn­ingar og sú jákvæða ímynd sem tek­ist hefur að afla íslenskum bjór hvað varðar gæði grund­vall­ist í reynd á afbroti sem þung refs­ing liggur við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár