13 milljarða samningur Arion banka til eflingar nýsköpunar

Arion banki hefur gert samning við Fjár­festinga­sjóð Evrópu um lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi eigi möguleika á hagstæðum lánveitingum til að efla nýsköpun.

Arion banki og European Investment Fund, EIF, hafa undir­ritað svonefndan InnovFin ábyrgðar­samning sem miðar að hagstæðum lánveitingum til lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja er hyggjast innleiða nýjungar í starfsemi sinni.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Arion banka og EIF.

InnovFin samningurinn gerir Arion banka kleift að veita þessum fyrir­tækjum lán á næstu tveimur árum sem eru studd með ábyrgð frá Fjár­festingar­sjóði Evrópu í samræmi við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunar­rammaáætlun Evrópusambandsinsm (ESB). Áætlað er að stuðningur ESB við íslensk nýsköpunar­fyrirtæki leiði af sér lánasafn að andvirði 107 milljón evra eða um 13 milljarða króna, að því er segir í tilkynningunni.

EIF ábyrgist helming láns­fjárhæðar hvers láns, sem Arion banki veitir, samkvæmt samningnum.

Framkvæmda­stjóri Fjár­festingar­sjóðs Evrópu, Pier Luigi Gilibert, segir í tilkynningu að það sé gleðilegt fyrir sjóðinn að undirrita fyrsta samning sem þennan á Íslandi. „Þetta er jafnframt fyrsti InnovFIn samningurinn sem Fjár­festingar­sjóður Evrópu gerir í EFTA ríki. 107 milljónir evra er veruleg upphæð fyrir íslensk fyrirtæki og við erum sannfærð um að lána­safnið, sem Arion banki ætlar að byggja upp, stutt ábyrgðum InnovFin, muni efla nýsköpun á Íslandi,“ segir Gilibert.

Bakábyrgð ESB nýtist vel

Framkvæmda­stjóri ESB í málefnum rannsókna, vísinda og nýsköpunar, Carlos Moedas, segir að bakábyrgð ESB muni koma sér vel fyrir íslensk fyrirtæki. „Íslensk fyrirtæki, sem leggja áherslu á nýsköpun, geta nú notið góðs af ábyrgðum ESB sem geta alls numið 107 milljónum evra í takt við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunar­rammaáætlun ESB. Samningurinn, sem var undir­ritaður í dag, mun hjálpa fyrir­tækjum að ná markmiðum sínum og leggja sitt af mörkum til hagvaxtar og atvinnu­sköpunar á Íslandi.“

Styðja við nýsköpun

Höskuldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, fagnar samningnum í tilkyningu og segir bankann hafa lagt mikið kapp á að styðja við nýsköpun í atvinnu­lífinu. „Við leggjum mikla áherslu á að styðja við hvers kyns nýsköpun. Samningurinn við European Investment Fund er liður í því og gerir okkur kleift að lána til lítilla og meðal­stórra fyrirtæki vegna fjár­festinga þeirra í nýsköpun – í víðustu merkingu þess orðs. Þessi samningur gerir okkur kleift að lána á hagstæðari kjörum en ella þar sem sjóðurinn tekur á sig hluta þeirrar áhættu sem í lánveitingunni felst. Við erum spennt að kynna þessa nýjung fyrir íslenskum fyrir­tækjum sem eru að fjárfesta í nýsköpun, vöruþróun, nýjum framleiðslu­aðferðum eða sókn á nýja markaði,“ segir Höskuldur.

Markmiðið með ábyrgðum InnovFin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er að hvetja fjármála­stofnanir til að lána fyrir­tækjum, með færri en 500 starfs­menn, til fjár­festinga og/eða fjár­mögnunar rannsókna, þróunar og nýsköpunar, með fjár­stuðningi frá ESB. Fjár­festingar­sjóður Evrópu velur fjármála­stofnanir víðs vegar um Evrópu sem lýst hafa yfir áhuga á því að gerast milli­liðir.

Fjár­festingar­sjóður Evrópu (EIF) er hluti af Evrópska fjár­festingar­bankanum. Með InnovFin fást ábyrgðir og gagnábyrgðir fyrir fjár­mögnun að upphæð frá 25 þúsundum evra til 7,5 milljóna evra til þess að auka aðgengi lítilla og meðal­stórra nýsköpunar­fyrirtækja (með færri en 500 starfs­menn) að láns­fjármagni. Fjár­festingar­sjóður Evrópu stýrir verk­efninu með milli­göngu banka og annarra fjármála­stofnana í ESB-ríkjum og öðrum aðildar­löndum. Fjár­festingar­sjóður Evrópu tryggir milli­liðina fyrir hluta af því tapi sem kann að verða vegna lánveitinga samkvæmt áætluninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár