Minnisblöð sem áttu að geta spillt samningsstöðu ríkisins fengust afhent

Sjúkra­tryggingar neituðu að afhenda heilsu­gæslustöð minnis­blöð sem send voru til heilbrigðis­ráðuneytisins og sögðu þau geta spillt samnings­stöðu ríkisins í viðræðum við einka­reknar heilsu­gæslur. Í þeim er tekið undir athuga­semdir einka­rekinna stöðva.

Einka­rekin heilsu­gæslustöð, Heilsu­gæslan Höfða, þurfti að leita á náðir úrskurðar­nefndar um upplýsingamál til þess að fá afhent minnis­blöð sem Sjúkra­tryggingar Íslands tóku saman á síðasta ári og stíluðu á heilbrigðis­ráðuneytið. Sjúkra­tryggingar höfðu neitað að afhenda gögnin og báru því meðal annars við að afhending minnis­blaðanna gæti haft áhrif á samnings­stöðu ríkisins í samninga­viðræðum við einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar.

Í minnis­blöðunum, sem Kjarninn fékk afhent frá heilbrigðis­ráðuneytinu í kjölfar þess að úrskurðar­nefndin skikkaði Sjúkra­tryggingar til að láta Heilsu­gæsluna Höfða hafa þau fyrr í sumar, taka Sjúkra­tryggingar undir nokkuð af þeirri gagnrýni sem sett hefur verið fram af hálfu einka­rekinna heilsu­gæslustöðva á undan­förnum misserum, á sama tíma og samninga­viðræður ríkisins við einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar hafa staðið yfir.

Jafnræðis og gagnsæis ekki að fullu gætt, að mati Sjúkratrygginga

Fyrra minnis­blaðið var sett fram þann 13. apríl 2021 af hálfu Sjúkra­trygginga. Í því fór starfs­maður hjá deild heilbrigðis­þjónustu hjá Sjúkra­tryggingum yfir athuga­semdir sem stofnunin hafði fengið frá forsvars­mönnum einka­rekinna heilsu­gæslustöðva, tók undir nokkuð af þeim og óskaði eftir því að hefja samtal við ráðuneytið um þessi mál.

Meðal annars er í minnis­blaði Sjúkra­trygginga tekið undir gagnrýni á það að starfs­fólk ríkis­rekinna heilsu­gæslustöðva innan Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins (HH) hafi fengið sérstaka COVID-umbun, með ákvörðun Alþingis, en ekki starfs­fólk einka­rekinna heilsu­gæslustöðva.

Þessar greiðslur fóru framhjá því fjár­mögnunar­líkani sem notað er fyrir heilsu­gæslu­stöðvarnar, en greiðslu­fyrir­komulagið til heilsu­gæslustöðva á að vera hið sama óháð rekstrar­formi og upphæð greiðslna að ráðast eftir því hversu margir einstaklingar eru skráðir í þjónustu hverrar heilsu­gæslu.

„Að mati einka­rekinna stöðva og SÍ er þessi tilhögun í andstöðu við markmið líkansins um jafnræði og gegnsæi,“ segir í minnis­blaði Sjúkra­trygginga.

Einnig er gagnrýnt í minnis­blaði Sjúkra­trygginga að sérstöku viðbótar­fjármagni sem Alþingi ákvað að veita til heilsu­gæslunnar, til eflingar geðheil­brigðis­þjónustu í veiru­faraldrinum, hafi verið útdeilt utan fjár­mögnunar­líkansins.

„Þessi ákvörðun vinnur gegn því markmiði líkansins að tryggja jafna dreifingu fjármagns í samræmi við fjölda skjólstæðinga og gagnsæi í dreifingu fjármagns. Miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja þá var veitt nokkuð hærra fjármagni til Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðis pr. skráðan einstakling en til einka­rekinna stöðva,“ segir í minnis­blaði Sjúkra­trygginga.

Auk þess er gagnrýnt í minnis­blaðinu að á fjárlögum hvers árs fái Heilsu­gæsla höfuð­borgar­svæðisins fé til tækja­kaupa, en þetta er sagt ganga gegn markmiðum fjár­mögnunar­líkansins um að allir sitji við sama borð, óháð rekstrar­formi. Sérstök framlög ríkisins til tækja og búnaðar hjá Heilsu­gæslunni á höfuð­borgar­svæðinu nema 62,3 milljónum króna á þessu ári, samkvæmt fjárlögum.

Sjúkra­tryggingar segja að þetta sé ekki í samræmi við markmið fjár­mögnunar­líkansins um gegnsæi og jafnræði – „að opinber heilsu­gæsla fái fé framhjá líkani til tækja­kaupa en einka­reknar stöðvar þurfi að fjármagna sín tækjakaup af greiðslum sem koma úr líkaninu.“

Samkeppnisstaða ekki jöfnuð eins og í Svíþjóð

Sjúkra­tryggingar áttu fund með heilbrigðis­ráðuneytinu vegna þessara mála 12. maí í fyrra, og í kjölfarið sendi stofnunin frá sér annað minnis­blað til ráðuneytisins þann 7. júní með nokkrum viðbótar­punktum, þar sem sjónarmið stofnunarinnar til málanna voru rakin.

Í því minnis­blaði kemur meðal annars fram að hugmyndin að fjár­mögnunar­líkaninu sem notast er við í tengslum við rekstur heilsu­gæslustöðva á höfuð­borgar­svæðinu sé fengin frá Svíþjóð og byggi á framkvæmdinni eins og hún hafi verið í héraðinu Vestur-Gautlandi.

Sjúkra­tryggingar benda á að inni í líkaninu þar séu þættir til þess að jafna samkeppnis­stöðu, sem séu ekki til staðar hér. Meðal annars nefnir stofnunin að í Vestur-Gautlandi fái einka­reknar stöðvar virðis­aukaskatts­uppbót sem bætist ofan á greiðslur til þeirra, þar sem þær geti ekki dregið VSK frá í sinni starfsemi. Einnig benda Sjúkra­tryggingar á að í sænska módelinu sé hið opinbera með eina sjúklinga­tryggingu fyrir alla rekstrar­aðila, en þessu sé ekki að skipta hér.

Í því samhengi benda Sjúkra­tryggingar á að iðgjöld hafi hækkað verulega hjá einka­reknum stöðvum í upphafi árs 2021, þegar legháls­skimanir færðust til heilsu­gæslunnar, þar sem áhætta aukist þegar svo viðkvæmur mála­flokkur bætist við. „Þessi útgjöld eru eingöngu hjá einka­reknum stöðvum því ríkið kaupir ekki tryggingar fyrir sínar stöðvar,“ segir í minnis­blaði Sjúkra­trygginga.

Í minnis­blaði Sjúkra­trygginga segir að skilja hafi mátt á fundinum með fulltrúum heilbrigðis­ráðuneytisins að „eðlilegt væri að umbuna ríkis­reknum stöðvum meira því einka­reknar stöðvar væru í flestum tilvikum að greiða hærri laun“ til þess að vega upp á móti þeim fríðindum sem opinberir starfs­menn njóti í formi veikinda­réttar, meira atvinnu­öryggis og betri lífeyris.

Í minnis­blaði Sjúkra­trygginga segir þó að stofnuninni sé „ekki kunnugt um að farið hafi fram formleg greining á launa­greiðslum heilsu­gæslu­stöðvanna á höfuð­borgar­svæðinu þar sem þessi meinti launa­munur kemur fram“.

Niðurgreiðsla COVID-launakostnaðar?

Þar er einnig ítrekað, varðandi viðbrögð við kórónu­veiru­faraldrinum, að einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar hafi sent sitt starfs­fólk á vaktir til starfa við skimanir eins og aðrar heilsu­gæslu­stöðvar höfuð­borgar­svæðisins.

„Allur kostnaður vegna viðbúnaðar v. Covid er greiddur utan líkans. Þrátt fyrir fyrir­spurnir SÍ bæði til HH og HRN hafa ekki fengist upplýsingar um hvort inni í þeim kostnaði sem greiddur var til HH vegna þessa verkefnis hafi verið greiðslur v. aukins launa­kostnaðar sem óhjá­kvæmilega fylgdi verk­efninu. Til dæmis þar sem færri hendur voru á stöð til að sinna verkefnum þar og þá aukin yfirvinna ásamt því að vöktum um helgar við skimun fylgir yfirvinna með tilheyrandi kostnaði. Einka­reknar stöðvar hafa ekki fengið neinar greiðslur til að mæta auknum launa­kostnaði vegna þessa verkefnis þrátt fyrir að hafa mannað þessa þjónustu til jafns með HH, jafnt virka daga sem helgar,“ segir í minnis­blaði Sjúkra­trygginga.

Þar er einnig fjallað um veglega gjöf sem heilsu­gæslunni barst í kórónu­veiru­faraldrinum í formi hlífðar­búnaðar, en fram kemur í minnis­blaðinu að einungis sumar heilsu­gæslu­stöðvar, væntanlega þær opinberu, hafi fengið þeim búnaði úthlutað, sem skekki samkeppnis­stöðuna, þar sem búnaðurinn sé mjög dýr.

„Þörf fyrir hann er sá sami hjá öllum stöðvum. Þær stöðvar sem ekki fengu úthlutað af veglegri gjöf þurftu að kaupa allan sinn hlífðar­búnað sjálfar fyrir rekstrarfé sem kemur eingöngu úr módeli. Ef þessi hlífðar­búnaður hefur að mestu farið til miðlægrar þjónustu vegna skimana þá ætti slíkt að koma fram og vera gegnsætt fyrir alla aðila,“ segir í minnis­blaði Sjúkra­trygginga.

„Megin atriðið í allri þessari umræðu er sá, að með módelinu og þeirri faglegu hugmynda­fræði sem það byggir á (höfðatölu­greiðslur) er ætlunin að tryggja gegnsæi og janfræði milli aðila sem reka heilsu­gæslu­stöðvar. Með því að umbuna einum með viðbótar­greiðslum framhjá líkani eða fella niður kostnað hjá einum aðila án þess að það sé bætt upp hjá öðrum þá er verið að skekkja samkeppnis­stöðu,“ segir einnig í minnis­blaðinu.

Þar er imprað á því að það sé mikilvægt að laga sem fyrst þessa hnökra sem nú eru á módelinu, auk þess að tryggja fjárhags­legan aðskilnað á milli rekstrar Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins sem snýr að rekstri heilsu­gæslustöðva og annarra verkefna sem heilsu­gæslan hefur með höndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár