Telja að þingið hafi brotið lög í kosningu um dómara við Landsrétt

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, bíður eftir sím­tali frá for­seta Íslands, sem hann segir síð­asta örygg­is­ventil­inn í Lands­rétt­ar­mál­inu. Þingmenn Pírata telja að kjósa hefði átt um hvern dóm­ara fyrir sig í þing­inu, annað sé lög­brot.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn Pírata telja að Alþingi hafi brotið lög með því að kjósa um alla 15 dóm­ar­ana við Lands­rétt í einu lagi. Þetta kemur fram í máli bæði Jóns Þórs Ólafs­sonar og Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manna Pírata, á Facebook.

Jón Þór segir að for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, verði að vera viss um þessi mál áður en hann skrifi undir til­lögu ráð­herra, sem Alþingi sam­þykkti í gær. „Forseti Íslands er síð­asti örygg­is­ventill­inn í þessu máli. Hann getur neitað að skrifa undir og þá þarf þingið að vinna málið aftur.“

Jón Þór seg­ist vera búinn að hringja í for­set­ann og fá þau svör að Guðni hringi í hann síðar í dag.

Björn Leví bendir einnig á laga­grein­ina, sem þeir telja að sýni að þingið hefði átt að greiða atkvæði um hvern og einn dóm­ara fyrir sig. Í bráða­birgða­á­kvæði laga um dóm­stóla segir: „Þegar ráð­herra gerir til­lögu um skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt í fyrsta sinn skal hann leggja til­lögu sína um hverja skipun fyrir Alþingi til sam­þykktar. Samþykki Alþingi til­lögur ráð­herra skal hann senda þær for­seta Íslands sem skipar í emb­ættin, sbr. 21. gr. Samþykki Alþingi ekki til­lögu ráð­herra um til­tekna skipun skal ráð­herra leggja nýja til­lögu fyrir Alþingi til sam­þykktar.“

Því hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn klúðrað kosn­ing­unni, að mati Björns Leví. „Því ætti ekki að vera búið að kjósa dóm­ara enn. Það er enn tæki­færi til þess að bjarga þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár