Allt að tólf mánaða bið eftir sálfræðiviðtali fyrir börn

Mik­ill munur er á bið­tíma eftir tíma með sál­fræð­ing eftir lands­hlut­um. Á Suð­ur­landi getur biðin eftir tíma verið allt að tíu mán­uðir en hjá geð­heilsuteymum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er ekki bið eftir sál­fræði­þjón­ustu.

Biðtími eftir við­tali við sál­fræð­ing fyrir börn er mjög mis­langur eftir lands­hlutum. Hjá Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands er hann lengstur en þar þurfa börn að bíða að með­al­tali allt að 12 mán­uði eftir tíma en er málum þó raðað eftir alvar­leika. Til sam­an­burðar er bið­tími fyrir börn víð­ast hvar á Norð­ur­landi tvær til fjórar vikur.

Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, þing­manni Mið­flokks­ins, um bið­tíma og stöðu­gildi sál­fræð­inga.

Allt að tíu mánaða bið fyrir fullorðna

Full­orðnir þurfa einnig að bíða l mis­lengi eftir sál­fræði­tíma eftir því hvar þeir eru búsettir á land­inu. Á Suð­ur­landi getur hann verið allt frá því að vera eng­inn og upp undir 10 mán­uði. Á Suð­ur­nesjum er bið­tími eftir þjón­ustu geðteymis full­orðna um fimm mán­uðir.

Á Vest­fjörðum er bið­tími eftir sál­fræð­ingi meðal full­orð­inna að með­al­tali tveir mán­uðir en á Vest­ur­landi um tveir til þrír mán­uðir. Alvar­legri mál fá þó for­gang og ekki er bið eftir nám­skeiði í hug­rænni atferl­is­með­ferð á Vest­ur­landi.

Á Aust­ur­landi er hjá geð­heilsu­steymi eins til fjög­urra mán­aða bið­tími en um þrír til fimm mán­uðir fyrir full­orðna utan geð­heilsuteym­is­ins.

Á Norð­ur­landi er bið­tími fyrir 18 ára og eldri mun styttri á Akureyri en á Húsvík eða frá fjórum vikum á Akureyri upp til fjóra til fimm mán­uði á Húsavík.

Biðtími á fimmtán heilsu­gæslu­stöðvum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er þó tals­vert styttri en á lands­byggð­inni. Biðtími eftir þjón­ustu er mis­mun­andi en þóoft­ast tvær til fjórar vikur. Í geð­heilsuteymum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er hins vegar engin bið eftir sál­fræði­þjón­ustu.

Með því efla geðrækt og forvarnir má draga úr þjónustuþörf

Anna Kolbrún spyr einnig um stöðu­gildi sál­fræð­inga við hverja heil­brigð­is­stofnun og hversu mörg þau þurfi að vera til að tryggja við­un­andi þjón­ustu. Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra, svarar því að mik­il­vægt sé að kort­leggja reglu­lega þörf fólks fyrir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á land­inu öllu enda geti þjón­ustu­þörf verið breyti­leg eftir lands­hlutum.

Í þessu sam­bandi nefnir hún lýð­heilsu­vísa en með því að skil­greina lýð­heilsu­vísa út frá gögnum og greina niður á sveit­ar­fé­lög eða heil­brigð­is­um­dæmi sé unnt að bregð­ast við ef fram kemur breyt­ing á líðan þeirra sem búa á til­teknu svæði. Hún segir jafn­framt að með því að efla geð­rækt og for­varnir megi dragi úr þjón­ustu­þörf.

Svandís bendir jafn­framt á að hafa geð­heilsuteymi hafi verið fjár­mögnuð í öllum heil­brigð­is­um­dæmum og sé verið að byggja þau upp og skipu­leggja. „Með efl­ingu geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á land­inu öllu verður hægt að fylgj­ast með og mæta þjón­ustu­þörfum fólks betur eftir því sem við á á hverjum tíma og miðað við mat á þörf á hverju svæði,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár