630 milljónum úthlutað í geðheilbrigðisþjónustu

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra til­kynnti í gær hvernig 630 millj­ónum króna af fjár­lögum árs­ins verður ráð­stafað til að efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­vísu. Fyrsta stigs þjón­usta heilsu­gæsl­unnar verður efld með auk­inni aðkomu sál­fræð­inga.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra til­kynnti á blaða­manna­fundi í gær að 630 millj­ónum króna af fjár­lögum árs­ins verði ráð­stafað til að efla geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­vísu. Fénu verður ann­ars vegar varið í að fjölga stöðu­gildum sál­fræð­inga í heilsu­gæslu og efla þannig fyrsta stigs þjón­ustu heilsu­gæsl­unnar. Og hins vegar að efla sér­hæfð­ari þjón­ustu á sviði geð­heil­brigð­is­mála með áfram­hald­andi upp­bygg­ingu geð­heilsuteyma í öllum heil­brigð­is­um­dæmum lands­ins. Geð­heilsuteymi eru ætluð þeim sem þurfi meiri og sér­hæfð­ari þjón­ustu en veitt er á heilsu­gæslu­stöðvum.

Hægt að fá meðferð vegna algengustu geðraskana í heilsugæslunni

Í frétta­til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu segir að hlut­verk heilsu­gæsl­unnar sé að veita fyrsta stigs heil­brigð­is­þjón­ustu og því þurfi hún að vera í stakk búin til að takast á við þau heil­brigð­is­vanda­mál fólks sem algeng­ust eru, hvort sem þau vanda­mál eru af lík­am­legum eða geð­rænum toga. Því sé upp­bygg­ing sál­fræði­þjón­ustu innan heilsu­gæsl­unnar liður í því að efla heilsu­gæsl­una hvað þetta varðar. Í til­kynn­ing­unni segir að þannig eigi fólk að geta fengið með­ferð og stuðn­ing vegna algeng­ustu geð­rask­ana, svo sem þung­lyndis og kvíð­arask­ana í heilsu­gæsl­unni.

„Góð heilsa snýst ekki ein­ungis um lík­am­legt heil­brigði, heldur einnig og ekki síður góða and­lega heilsu. Heil­brigð­is­þjón­ustan þarf að taka mið af þessu og byggj­ast upp í sam­ræmi við það,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Geðheilsuteymin mæta flóknari vanda fólks

Geð­heilsuteymin eru síðan hugsuð sem ann­ars stigs heil­brigð­is­þjón­usta og þjón­usta þeirra er veitt á grund­velli til­vís­ana. Þar á að mæta vanda fólks þegar hann er flókn­ari en svo að hægt sé að mæta honum innan heilsu­gæsl­unnar. Tvö geð­heilsuteymi eru nú starf­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og verið er að und­ir­búa opnun þess þriðja sem mun þjóna íbúum Kópavogs, Garða­bæjar og Hafn­ar­fjarðar.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er skipu­lag og upp­bygg­ing geð­heilsuteyma á lands­byggð­inni komin mis­langt á veg en að und­ir­bún­ingur sé haf­inn í öllum heil­brigð­is­um­dæmum og vísir að teymum kom­inn á Aust­ur­landi og Suð­ur­nesjum. Með þeirri fjár­veit­ingu sem heil­brigð­is­ráð­herra kynnti í gær og í sam­ræmi við geð­heil­brigð­is­á­ætlun er áformað að geð­heilsuteymi verði tekin til starfa í öllum heil­brigð­is­um­dæmum fyrir lok þessa árs.

Stórauka möguleikann á að veita geðheilbrigðisþjónustu í heimabyggð

Jafn­framt kemur fram í til­kynn­ing­unni að snemmtæk íhlutun sé grund­vall­ar­at­riði og for­varnir eigi því að skipa ríkan sess. Sú upp­bygg­ing geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­vísu sem nú eigi sér stað stór­auki mögu­leik­ann á því að veita fólki þessa mik­il­vægu þjón­ustu í heima­byggð.

Við ákvörðun um skipt­ingu fjár­ins milli heil­brigð­is­um­dæma var tekið mið af áætl­unum heil­brigð­is­stofn­ana um upp­bygg­ingu og efl­ingu geð­heilsuteyma, íbúa­fjölda í við­kom­andi heil­brigð­is­um­dæmum og eins var horft til lýð­heilsu­vísa Embættis land­læknis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár