Roubini: „Tímasprengja“ á markaði - Dramatískt fall í kortunum

Hagfræðingurinn Nouriel Roubini, sem er einna þekktastur fyrir það að spá fyrir um niður­sveifluna á fjármála­mörkuðum 2007 og 2008, segir að viðvörunar­ljós séu nú farin að sjást á mörkuðum vegna þess hversu mikið magn af ódýru fé flæði um markaði. Þar eru örvunar­aðgerðir seðla­banka heimsins í miðpunkti, en þeir hafa dælt fjármagni á litlum sem engum vöxtum, út á markaði alveg frá því niður­sveiflan náði hámarki á fjármála­mörkuðum, á árunum 2007 og 2008. Þetta kemur fram á vef Business Insider.

Roubini óttast að aðgerðir seðla­banka, sem miði að því að örva markaði, muni til lengdar ýta undir bólu­myndun á markaði og ýktar sveiflur. Þá séu einnig komin fram einkenni þess að þessar ýktu sveiflur, þar sem fjármagn hreyfist hratt milli eigna­flokka á markaði, séu farnar að valda því að lausafjár­erfiðleikar skapist hjá sjóðum tíma­bundið, sem svo geti hrint af stað dramatískri niður­sveiflu. Roubini segir þessi einkenni hafa komið fram árið 2010, þegar verð á verð­bréfum hrundi á örskömmum tíma um 10 prósent, og þá hafi miklar og ýktar sveiflur á skuldabréfa­markaði, vegna orða þáverandi seðla­bankastjóra Banda­ríkjanna, Ben Bernanke, á vormánuðum 2013, verið vísbendingar um að eitthvað sé gruggugt undir sléttu yfirborði fjármála­markaða í augna­blikinu.

Með þessu er Roubini að taka undir með Benoit Coeure, sem á sæti í banka­stjórn Seðla­banka Evrópu, en hann hefur lýst yfir áhyggjum sínum af því að miklar örvunar­aðgerðir seðla­banka heimsins, sem engin fordæmi eru fyrir sé horft til hlutfallslegrar stærðar þeirra miðað við efnahag ríkjanna, geti komið í bakið á heims­búskapnum síðar meir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár