Ríkisábyrgðir á afleiðusamningum Landsvirkjunar fólu ekki í sér ríkisaðstoð

ESA hefur lokið rannsókn á ríkis­ábyrgðum á afleiðu­samningum Lands­virkjunar.

Eftirlits­stofnun EFTA (ESA) hefur lokið rannsókn á ríkis­ábyrgðum á afleiðu­samningum Lands­virkjunar en stofnunin telur að samningarnir hafi ekki falið í sér ríkis­aðstoð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA.

„Lands­virkjun er stærsti raforku­fram­leiðandi á Íslandi og einn stærsti fram­leiðandi endurnýjanlegrar raforku í Evrópu. Í samningum um stóriðju er fyrir­tækið í samkeppni við aðra fram­leiðendur í Evrópu. Til að verjast gengis- og vaxta­áhættu í skulda­safni sínu gerði Lands­virkjun ýmiss konar afleiðu­samninga sem íslenska ríkið gekk í ábyrgð fyrir,“ segir í tilkynningunni.

ESA hóf rannsókn á ríkis­ábyrgðunum í maí árið 2017 með það að markmiði að kanna hvort þær væru í samræmi við EES-reglur um ríkis­styrki. Könnun ESA laut að því hvort Lands­virkjun nyti efnahags­legs ávinnings af ríkis­ábyrgðinni eða hvort endur­gjaldið fyrir hana væri á markaðs­kjörum.

Rann­sóknin hefur nú leitt í ljós að ábyrgðirnar á afleiðu­samningum Lands­virkjunar leiddu ekki til efnahags­legs ávinnings fyrir fyrir­tækið og er málinu því lokið að hálfu ESA, segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár