ESB sker upp herör gegn falsfréttum

Framkvæmda­stjóri dómsmála hjá Evrópu­sambandinu tilkynnir aðgerðir sem stefna að því að stemma stigu við fals­fréttir tengdar kosningum aðilda­þjóða sinna í gegnum samfélags­miðla.

Stefnt er að birtingu aðgerðaráætlunarinnar í haust
Stefnt er að birt­ingu aðgerð­ar­á­ætl­un­ar­innar í haust

Evrópu­sambandið stefnir að því að koma af stað aðgerðar­áætlun gegn kosninga­áróðurs í formi fals­frétta á samfélags­miðlum í haust. Þetta kemur fram í frétt á vef sem The Guardian birti í morgun.

Samkvæmt fréttinni sagði Vera Jourová, framkvæmda­stjóri dómsmála hjá sambandinu, ríkis­stjórnir aðildar­þjóðanna þurfa að samrýma aðgerðir sínar til að berjast gegn fals­fréttum og misnotkun á persónu­upplýsingum í pólitískum auglýsingum.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur einnig lagt fram starfs­reglur fyrir öll aðildar­ríki þess til að berjast gegn misvísandi upplýsingum, hvetja samfélags­miðla til að takmarka persónu­miðaðar auglýsingar í pólitískum tilgangi og auka gagnsæi í fjár­mögnun slíkra kosninga­barátta. Enn fremur hefur stjórnin kallað eftir sjálf­stæðs vettvangs staðreynda­vaktara auk aðgerða til að bæta gæði frétta­mennsku og fjölmiðla­læsi innan sambandsins.

Liggur fyrir í haust

Samkvæmt Jourová hafa fals­fréttir og íhlutanir í kosningum sem byggðar eru á misvísandi upplýsingum áhrif á allt sambandið í heild sinni þótt regluverk í kringum kosningar til ríkis­stjórna sé í höndum hverrar aðildar­þjóðar. „Við þurfum að bæta samstarf okkar í þessum málum innan allrar álfunnar,“ sagði Jourová og bætti við að stefnu­yfirlýsing eða aðgerðar­áætlun ætti að liggja fyrir í haust.

Frétt Guardian vísar einnig í skýrslu sem Oxford Internet Institute birti nýlega, en samkvæmt henni hafa fundist sannanir um skipulagðar íhlutanir í kosningum í 48 löndum í ár. Talan hefur hækkað ört á skömmum tíma, en í fyrra námu íhlutanirnar alls til 28 landa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár