Alibaba auglýsti eftir starfskrafti með atgervi klámmyndaleikkonu

Alibaba Group Holding, stærsta netfyrirtæki Asíu sem rekur meðal annars samnefnda netverslun, dró nýverið til baka atvinnu­auglýsingu sem vakti hörð vibrögð meðal almennings. Í auglýsingunni var auglýst eftir starfs­krafti með eigin­leika þekktrar japanskrar klámmynda­leikkonu, til að hvetja tölvu­forritara fyrir­tækisins til góðra verka. Frétta­miðillinn Bloomberg greinir frá málinu.

Alibaba auglýsti eftir áhuga­sömum sem kunna að halda „kóðunar-öpunum“ svokölluðum að verki, að vekja þá og skipuleggja morgun­fundi. Til að hljóta stöðuna var tiltekið í auglýsingunni að líkamlegt atgervi á borð við klámmynda­leikkonuna Sola Aoi myndi auka möguleika umsækjenda.

Auglýsingin birtist á sama tíma og bandarísk tækni­fyrirtæki eru gagnrýnd fyrir mikið kynja­misrétti og mismunun. Þrátt fyrir gott orðspor Alibaba hvað varðar fjölda kvenna í stjórnunar­störfum hjá fyrir­tækinu, sætti umrædd starfs­auglýsing harðri gagnrýni á kínverskum samfélags­miðlum.

„Það er ekki bara særandi móðgun gagnvart kvenn­mönnum að slíkt starf fyrir­finnist, heldur sömuleiðis gagnvart karl­mönnum og ekki síst þeim sem starfa sem tölvu­forritarar,“ hefur Bloomberg eftir fyrr­verandi starfs­manni Alibaba, sem vann við forritun.

Í yfir­lýsingu frá fyrir­tækinu segir það að um misheppnaða tilraun til spaugilegrar markaðs­setningar hafi verið að ræða. Þó fyrir­tækið auglýsi enn eftir „klapp­stýru“ fyrir tölvu­forritara hefur saman­burðurinn við klámmynda­leikkonuna verið fjar­lægður og karlar hvattir til að sækja um stöðuna til jafns við konur.

„Við biðjum alla þá sem móðguðust vegna auglýsingarinnar afsökunar. Alibaba er staðráðið í að stuðla að jafnrétti innan fyrir­tækisins án mismununar,“ að því er fram kemur í yfir­lýsingu fyrir­tækisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár