Merkel reynir að sannfæra þýska þingið um samkomulagið við Grikki

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, reynir nú að sannfæra þýska þingmenn um samkomu­lagið við Grikki, en mikil óánægju er hjá mörgum þeirra með samkomu­lagið, segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Flokkur Merkel, Kristilegir demó­kratar, er klofinn í afstöðu sinni til samkomu­lagsins, en minni­hluti þingmanna flokksins er þó mótfallinn samkomu­laginu eins og það er úr garði gert. Þeir óttast að skuldir verði afskrifaðar með þeim afleiðingum að þýskir skatt­greiðendur þurfi að bera kostnað vegna óstjórnarinnar í Grikk­landi, að því er segir í frétt BBC.

Samtals er samkomu­lagið upp á 86 milljarða evra, en rúmlega tuttugu milljarðar evra af þeirri tölu eru áætlaðar í endur­skipulagningu á banka­kerfi Grikk­lands. Óttast margir að innviðir banka­kerfisins séu verri en af er látið.

Atkvæða­greiðsla vegna samkomu­lagsins við Grikki fer fram í þýska þinginu á morgun.


Merkel faces rebellion, German lawmakers debate Greek bailout: http://t.co/5PC6kKG5ZX pic.twitter.com/GYYxKXRHgJ


— Reuters Top News (@Reuters) August 18, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár