Vill ekki sjá launahækkanir

Borghildur Vilhjálms­dóttir vill að ríkis­stjórnin hækki persónu­afslátt og byggi íbúðir.

Miklu meiri uppbyggingu
Miklu meiri upp­bygg­ingu Borg­hildur Vil­hjálms­dóttir vill að rík­is­stjórnin og verka­lýðs­fé­lögin skerpi á áhersl­unum. Mynd: Davíð Þór

Ég verð voðalega örg þegar verið er að tala um launa­hækkanir. Ég held að fólk hafi lítið við þær að gera, því launa­hækkanir einar og sér hafa ekkert að segja. Sleppum þeim bara.

Ef laun verða hækkuð um fáein prósent smitast það bara út í þjóð­félagið – leiguverð hækkar, vextir hækka, allt hækkar og við verðum búin að tapa niður hverri einustu krónu um leið og við fáum hana.

Unga daman sem er að vinna með mér er einstæð móðir sem býr í 60 fermetrum. Hún borgar fyrir það 180 þúsund krónur. Hún kemst aldrei í eigið húsnæði, hún situr bara föst í þessu rándýra leigu­húsnæði.

Ég vil sjá ríkis­stjórnina og verkalýðs­félögin fara í mikla uppbyggingu á húsnæði. Svo þarf að hækka persónu­afsláttinn hjá öllum þeim sem hafa tekjur undir 500 þúsund krónum.

Fyrir utan þetta ætti að hækka örorku­lífeyrinn og atvinnu­leysis­bæturnar. Það eru aðgerðir sem myndu bjarga mörgu fólki.

Hvort ég ætli að fara í pólitík sjálf? Nei, ég er orðin of gömul til þess. Ég ein og sér get heldur ekkert gert. Þau eru líka hörð þetta fólk hjá Eflingu, VR og Vilhjálmur uppi á Skaga. Þau þurfa bara að leggja enn meiri áherslu á íbúða­málin og einbeita sér að réttu úrræðunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár