Forbes og Tinder í samstarf - Vilja tengja saman ungt fólk í viðskiptalífinu

Bandaríska fjölmiðla­fyrirtækið Forbes og samfélags­miðillinn Tinder, sem er ætlaður einhleypum í makaleit, ætla að setja App í loftið sem einblínir á að tengja saman fólk undir þrítugu í viðskipta­lífinu sem hefur áhuga á því að mynda betri tengsl og styrkja þannig feril sinn.

Um þetta tilkynnti Forbes í vikunni en Appið verður sett í loftið á sérstökum viðburði sem skipulagður er í borginni Philadelphia dagana 4. til 7. október en þá verður uppfærður listi Forbes yfir 30 ríkustu einstaklingana undir þrítugu gerður opinber.

Tinder samfélagið hefur stækkað hratt að undan­förnu og eru notendur um allan heim um 50 milljónir, þar af eru daglegir virkir notendur í kringum 10 milljónir. Fyrir­tækið hefur verið metið á um fimm milljarða Bandaríkja­dala, eða jafnvirði um 700 milljóna króna, af fjár­festum sem hafa lagt fyrir­tækinu til fé að undan­förnu.


Tinder is launching a new app that's not for hookups — it's for power networking http://t.co/jItjesKHMZ pic.twitter.com/Z3sLXiBTya


— Business Insider (@businessinsider) August 6, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár