Talsmaður Kremlar segir Pútín boðið í „friðarráð“ Trumps fyrir Gaza

Vladimír Pútín hefur fengið boð um að taka þátt í „friðar­ráði“ Donalds Trump um stjórn­sýslu og uppbyggingu Gaza eftir stríð. Talsmaður Kreml­ar­stjórnar segir Rússa vera að kanna nánar eðli tilboðsins með bandarískum stjórn­völdum.

Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur verið boðið að taka þátt í „friðar­ráði“ Donalds Trumps, forseta Banda­ríkjanna, sem ætlað er að hafa umsjón með stjórn­sýslu og uppbyggingu á Gaza eftir stríð, að því er talsmaður stjórn­valda í Kreml sögðu í morgun.

„Pútín forseti fékk einnig boð um að ganga til liðs við þetta friðarráð,“ sagði tals­maðurinn Dmitry Peskov við blaðamenn, þar á meðal AFP, og bætti við að Rússar væru að reyna að „skýra öll blæbrigði“ tilboðsins með Washington.

Aðrir leiðtogar sem sagðir eru hafa fengið boð um að taka þátt í „friðar­ráðinu“:

  • Edi Rama, forsætis­ráðherra Albaníu
  • Javier Milei, forseti Argentínu
  • Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu
  • Mark Carney, forsætis­ráðherra Kanada
  • Nikos Christodoulides, forseti Kýpur
  • Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egypta­lands
  • Viktor Orban, forsætis­ráðherra Ungverja­lands
  • Narendra Modi, forsætis­ráðherra Indlands
  • Giorgia Meloni, forsætis­ráðherra Ítalíu
  • Abdullah II, konungur Jórdaníu
  • Shehbaz Sharif, forsætis­ráðherra Pakistans
  • Santiago Pena, forseti Paragvæ
  • Nicusor Dan, forseti Rúmeníu
  • Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríð Trumps

Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem verið er að fylgjast með þér, þá er það veruleiki sem þú þarft að díla við,” segir Magnús Þorkell Bernharðsson, Mið-Austurlanda­fræðingur við Williams College í Banda­ríkjunum og gesta­prófessor við guðfræði- og trúarbragða­fræði­deild HÍ – sem nýverið flutti hér á landi fyrir­lestra, annan um Íran og eldfimt ástand vegna innrásar þar, hinn um aðþrengt akademískt frelsi í Banda­ríkjunum.

33 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár