Framlag vegna útgjalda við fermingu og tannréttingar verði lögfest

Búið er að leggja fram frum­varp á Alþingi en til stendur að lögum um almanna­trygg­ingar verði breytt. Fólk sem misst hefur maka sína og er með börn á umönn­un­ar­aldri hefur gagn­rýnt kerfið og það mis­rétti sem því finnst það vera beitt.

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar. Trygg­inga­stofnun rík­is­ins getur, ef af verður, ákveðið sér­stakt fram­lag vegna útgjalda við skírn barns, ferm­ingu, gler­augna­kaup, tann­rétt­ingar, vegna sjúk­dóms, greftr­unar eða af öðru sér­stöku til­efni.

Kjarninn fjall­aði um mál Bergþóru Heiðu Guð­munds­dóttur, sem gjarnan er kölluð Heiða, en hún missti eig­in­mann sinn með börn á umönn­un­ar­aldri á fram­færi. Hún gagn­rýnir kerfið og bendir á það mis­ræmi sem sjá má í því. Hann segir að þetta bitni mest á börnum lát­inna for­eldra og telur hún að þau standi ekki jafn­vígis öðrum börnum.

Aðeins þeir með gott bakland geta staðið undir kostnaði

Heiða segir að erfitt geti reynst að fjár­magna ein­sömul tann­rétt­ingar, ferm­ingar, bíl­próf og þess háttar útgjöld en ólíkt ein­stæðum for­eldrum þá getur hún ekki sótt um sér­stök fram­lög þegar það á við. Henni finnst að með þessu sé verið að mis­muna börnum og að Trygg­inga­stofnun túlki lögin þannig að þau eigi ekki rétt á frek­ari fram­lögum. Henni finnst mikið jafn­rétt­is­mál að allir skulu vera jafnir fyrir lögum en þegar börn ekkna eða ekkja eiga í hlut þá sé það ekki raunin.

Þannig sé verið að mis­muna börn­unum og hegna þeim fyrir aðstæður þeirra. Foreldri í þessum aðstæðum geri iðu­lega sitt besta en fái mjög tak­mark­aða hjálp frá rík­inu. Aðeins þeir heppnu með gott bak­land og há laun geti staðið undir þessum mikla kostn­aði sem fylgir því að sjá fyrir börnum.

Heiða veit um dæmi þess að fólk, sem misst hefur maka sína, hafi orðið veikt og þurft að treysta á örorku í fram­hald­inu og að pen­inga­á­hyggjur hafi reynst erf­iðar eftir sorg og missi.

Kom mikið á óvart

Silja Dögg segir í sam­tali við Kjarnann að kveikjan að þessu frum­varpi hafi verið sam­skipti við konu í kosn­inga­bar­áttu árið 2013. Hún hafi sagt Silju Dögg frá aðstæðum sínum og að hennar eigin sögn kom þetta henni mikið á óvart. Hún hafi alltaf gert ráð fyrir því að kerfið myndi grípa fólk í þessum aðstæðum.

Við und­ir­bún­ing hafi hún beðið lög­fræð­ing um hjálp til að búa til frum­varp um barna­líf­eyri vegna sér­stakra útgjalda. Þau tóku laga­texta um með­lög sér til fyr­ir­myndar og segir Silja Dögg að með því sé jöfnuð staða milli þeirra sem fá með­lag og þeirra sem eru í aðstæðum á borð við fólk sem misst hefur maka sína með börn á umönn­un­ar­aldri.

Að sögn Silju Daggar hefur fram­varp­inu verið vel tekið. Hún telur þetta þarft mál­efni þrátt fyrir að hópur fólks sem þetta nær til sé ekki stór. Fólkið innan hans sé aftur á móti að glíma við erf­iða hluti og sé því ekki í stakk búið að berj­ast fyrir rétti sínum.

Hún segir enn fremur að við­brögð hinna flokk­anna á þingi hafi verið góð. Flestir hafi viljað taka þátt og séu með­flutn­ings­menn úr öllum flokkum nema Viðreisn og Mið­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár