Sigríður Víðis ráðin upplýsingafulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins

Sigríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin tíma­bundið til starfa sem upp­lýs­inga­full­trúi félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Fyrir nokkrum árum var hún aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar núver­andi félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem upplýsingafulltrúi félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Sigríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin tíma­bundið sem upp­lýs­inga­full­trúi félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Sigríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin til starfa sem upp­lýs­inga­full­trúi félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Tekur Sigríður við starf­inu af Grétari Sveini Theó­dórs­syni, sem hafði sinnt starf­inu frá árinu 2020.

Staðan var ekki aug­lýst og var raunar síð­ast aug­lýst árið 2019, en heim­ild er í lögum til þess að ráða fólk tíma­bundið í störf á vegum hins opin­bera til allt að tveggja ára, þrátt fyrir að meg­in­reglan sé sú að laus störf skuli aug­lýst.

Sigríður er fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar núver­andi félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, en hann fékk hana til aðstoðar árið 2018 er hann var á sínu fyrsta starfs­ári sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Gegndi hún því starfi í rúmt ár.

Áður en Sigríður varð aðstoð­ar­maður ráð­herra hafði hún verið upp­lýs­inga­full­trúi hjá UNICEF á Íslandi frá árinu 2011, en frá alda­mótum hafði hún starfað sem blaða­maður, ýmist í lausa­mennsku, í fullu starfi eða með­fram námi.

Hún er höf­undur bók­ar­innar Rík­is­fang: Ekkert sem fjallar um hóp palest­ínskra kvenna og barna sem flúðu Írak og end­uðu á Akranesi, en bókin var til­nefnd til bæði Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna auk þess að hljóta verð­laun Hag­þenkis, félags höf­unda fræði­rita og kennslu­gagna.

Sigríður er með BA-próf í heim­speki frá Háskóla Íslands, með mann­fræði sem auka­grein, og meist­ara­próf í þró­unar- og átaka­fræðum frá Uni­versity of East Anglia í Bret­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár