Kakkalakkarnir komnir til að vera

Spreng­ing í útköllum vegna kakka­lakka í heima­húsum. Þýski kakka­lakk­inn finnst nú á öllu land­inu.

Þýski kakkalakkinn
Þýski kakka­lakk­inn Erfitt getur reynst að losa sig við þennan hvim­leiða hús­gest sem nær­ist á fitu og mat­ar­leifum.

Íbúa í Reykja­nesbæ, sem hafði um nokk­urt skeið safnað flöskum og dósum til þess að fara með í end­ur­vinnslu­stöð­ina Dósasel í Reykja­nesbæ, brá heldur betur í brún þegar hann tæmdi poka á gólfi fyr­ir­tæk­is­ins í síð­ustu viku. Með tómu flösk­unum féllu fjöl­margir kakka­lakkar á gólfið, um tíu stykki, og var þá strax hringt í Ragnar Guð­leifs­son, en hann starfar sem mein­dýra­eyðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Loka þurfti Dósaseli þennan dag­inn á meðan Ragnar gekk úr skugga um að þeir væru ekki fleiri á ferð­inni auk þess sem öllum flöskum, dósum, pokum og öðru laus­legu var fargað. Þetta var ekki fyrsta útkallið hans Ragnars vegna kakka­lakka á þessu ári. Þvert á móti þá hafa útköllin verið ansi mörg í ár og hefur þeim fjölgað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum.

„Já, það er orðið mun meira um þessi útköll en venju­lega. Ég hef starfað við þetta í sex ár núna og hef aldrei séð jafn mörg til­felli þar sem kakka­lakkar hafa gert sig heima­komna hjá fólki. Þetta vanda­mál er ekki bara bundið við Suð­ur­nesin þó svo að það hafi verið þannig í gamla daga í kringum her­inn. Núna finnst hann um allt land,“ segir Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár