Funduðu í tvo daga vegna Samherjamálsins

Rann­sóknir á Samherja­málum eru nú í gangi í Namibíu, Noregi og á Íslandi.

Full­trú­ar héraðssak­sókn­ara áttu fund með full­trú­um Økokrim, efna­hags- og um­hverf­is­glæpa­deild norsku lög­regl­unn­ar, og ýms­um stofn­un­um í Namib­íu, í Haag í Hollandi í síðustu viku vegna Sam­herja­máls­ins.

Greint var frá þessu í kvöld­frétt­um Stöðvar 2, en fundað var í tvo daga vegna rannsókna sem eru í gangi.

Fundurinn fór fram í húsa­kynnum Eurojust í Haag.

Rann­sóknir eru nú í gangi á Íslandi, í Namibíu og Noregi, en rannsókn málsins beinist meðal annars að mútu­greiðslum til fyrr­verandi ráðherra í Namibíu, og hátt­settra aðila innan stjórn­kerfisins og í atvinnu­lífinu þar í landi. Sex eru í haldi lögreglu í Namibíu, vegna málsins, eins og fram hefur komið.

Rann­sóknir á Íslandi eru einnig í gangi á vegum Skatt­rannsóknar­stjóra, og þá hefur FME kallað eftir upplýsingum um viðskipta­hætti Samherja frá viðskipta­bönkunum.

RÚV, Stundin og Al Jazeera hafa leitt umfjöllun um málið, sem byggir á skjölum sem WikiLeaks birti um starfsemi Samherja í Namibíu og víðar, en það Jóhannes Stef­ánsson, fyrr­verandi starfs­maður Samherja í Namibíu, hefur stöðu uppljóstrara í Namibíu vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár