192 verða ákærðir vegna blóðugra átaka vélhjólagengja í Waco

Talsmaður lögreglunnar í Waco, í Texas ríki Banda­ríkjanna, sagði í dag að 192 einstaklingar verði ákærðir vegna skot­bardaga sem átti sér stað í borginni á sunnudag, þar sem vélhjóla­gengi tókust á í blóðugum átökum. The New York Times greinir frá málinu.

Skot­bardaginn átti sér stað við vinsæla verslunar­miðstöð í Waco, þar sem níu meðlimir vélhjóla­gengja létu lífið og átján slösuðust. Lögreglu­yfirvöld á staðnum segja að átökin hafi átt sér stað á milli vélhjóla­gengjanna Bandidos og Cossacks, en gengin hafa lengi eldað grátt silfur saman, en auk þeirra tóku meðlimir þriggja annarra vélhjóla­gengja þátt í bardaganum.

Þeir sem voru hand­teknir eftir átökin horfa fram á að vera ákærðir fyrir aðild að skipulagðri glæpa­starfsemi. Þeir voru leiddir fyrir dómara í gær, sem kváðu upp úrskurð sinn að þeim yrði ekki sleppt nema gegn einnar milljónar Bandaríkja­dala tryggingu.

Slagsmál sem þróuðust út í blóðugan skotbardaga


Veit­inga­stað­ur­inn Twin Peaks, þar sem átökin brut­ust út, verður lok­aður í viku vegna rann­sóknar lög­reglu sem og hluti versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar sem varð hvað harð­ast úti í skot­bar­dag­anum.

Átökin hófust um hádegis­bilið að staðar­tíma fyrir utan áður­nefndan veitinga­stað og færðust síðar út á bílastæði verslunar­miðstöðvarinnar. Fyrst var um hóps­lagsmál að ræða sem fljótlega þróuðust út í vopnuð átök með hnífum, keðjum, kylfum og loks skot­vopnum. Vopnaðir lögreglu­menn voru fljótir á staðinn þar sem lögreglu­yfirvöld höfðu áhyggjur af því að til átaka kæmi á milli hundruða meðlima fimm vélhjóla­gengja sem höfðu safnast saman fyrir utan veitinga­staðinn.

Ljósmynd sem lögreglu­yfirvöld í Waco birtu á Facebook-síðu sinni í dag sem sýnir vélhjól fyrir utan veitinga­staðinn Twin Peaks. Mynd: EPA

Ljósmynd sem lögregluyfirvöld í Waco birtu á Facebook-síðu sinni í dag sem sýnir vélhjól fyrir utan veitingastaðinn Twin Peaks. Mynd: EPA
Ljósmynd sem lög­reglu­yf­ir­völd í Waco birtu á Facebook-síðu sinni í dag sem sýnir vél­hjól fyrir utan veit­inga­stað­inn Twin Peaks. Mynd: EPA

Þegar laganna verðir mættu á bardaga­svæðið snérust vélhjóla­genginn sér fljótlega að þeim og létu byssu­kúlur rigna yfir þá, sem svo svöruðu með því að fella og særa nokkra vélhjóla­menn. Átta þeirra létu lífið í bardaganum sjálfum, sá áttundi á sjúkra­húsi. Hinir slösuðu voru síðar sömuleiðis fluttir á sjúkrahús með skot- og stungusár. Mikil mildi þykir að enginn lögreglu­maður eða saklaus borgari hafi slasast í bardaganum, en lögregla haldlagði um hundrað vopn í kjölfar átakanna.

Hunsuðu tilmæli lögregluyfirvalda


„Þetta er versta ástand sem ég hef orðið vitni að á mínum 34 ára ferli,“ hefur The New York Post eftir lög­reglu­manni sem var á vett­vangi. „Það var blóð út um allt.“

Twin Peaks veitinga­staðurinn hefur áður hýst fjölda­samkomur vélhjóla­gengja, en lögreglu­yfirvöld gagnrýna eigendur staðarins fyrir að neita að hlýða tilmælum lögreglu um að staðurinn hentaði ekki undir samkomur af slíku tagi. „Þeir hafa ítrekað leyft þessum vélhjóla­mönnum að koma saman hjá sér, og það sem gerðist er afleiðing af því,“ segir áður­nefndur lögreglu­maður í samtali við The New York Post. „Það hefði verið hægt að komast hjá þessum hræðilega atburði ef þeir hefðu bara hlustað á okkur og farið að ráðum okkar.“

Twin Peaks, sem er veitinga­húsa­keðja í Texas, hefur harmað atvikið í frétta­tilkynningu og lofað bót og betrun og að staðurinn muni gera allt sem í sínu valdi stendur til að vinna framvegis með lögreglu­yfirvöldum til að hindra slík voðaverk.

Samkvæmt umfjöllun The New York Post má rekja tildrög byssu­bardagans til deilna um bílastæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár